Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Í upphafi þessa pistils vil ég nota tækifærið og
þakka Jóhönnu Lúðvíksdóttur hjartanlega
fyrir samstarfið síðustu ár, en Jóhanna hefur
starfað hjá Bændasamtökunum síðastliðin
35 ár og verður mikil eftirsjá af henni enda
hefur hún reynst bændasamfélaginu mikill
akkur í gegnum árin.
Í landbúnaði starfa bændur við margvíslegar
reglur sem lúta að þeirra starfi og starfsumhverfi.
Þar er löggjafinn með til viðmiðunar leikreglur
sem settar eru af Evrópusambandinu sem skiptir
landbúnaði upp í þrjú svæði, suðursvæði,
miðsvæði og norðursvæði. Mismunandi
leikreglur eru fyrir hvert svæði fyrir sig á
grundvelli hvað má og hvað ekki má við
framleiðslu afurða. Þar virðist engu skipta
hollustuhættir við notkun sýklalyfja, hormóna
eða varnarefna gagnvart neytendum.
Ef horft er til Íslands, þar sem við
erum skilgreint norðursvæði í skilningi
Evrópusambandsins, þá höfum við sem þjóð
alveg gleymt því að nýta sérstöðu landsins fyrir
þær undanþágur sem okkur sem þjóð auðnast
til frelsis, athafna og sjálfstæðis. Íslenskar
landbúnaðarvörur eru með þeim heilnæmustu
í heimi sem framleiddar eru hér á landi og það er
staðfest af Evrópsku lyfjastofnuninni. Á meðan
er ekkert lát á óhóflegri notkun sýklalyfja í
evrópskum landbúnaði sem leitt hefur til ört
vaxandi aukningar sýklalyfjaónæmra baktería
sem berast í fólk.
Þrátt fyrir að vera „best í bekknum“, eru nú
blikur á lofti um framtíðina þar sem afkoma í
frumframleiðslunni er undir. Það er ekki okkur
til framdráttar sem þjóð að láta okkar heilnæmu
og hollu afurðir renna okkur úr greipum, því
það sem við missum á framleiðslugrunni í dag
verður ekki aftur náð svo hæglega.
Mikill og góður baráttufundur var haldinn
á miðvikudaginn 26. október síðastliðinn í
Salnum í Kópavogi að frumkvæði Samtaka
ungra bænda. Fjölmenni sótti fundinn þar sem
hlýtt var á erindi frá ungum bændum sem lýstu
stöðunni í raunheimum. Því líkt og ítrekað
hefur verið bent á þá er afkomuvandinn okkar
stærsta verkefni bæði gagnvart nýliðun og ekki
síður hjá starfandi bændum hvar sem þeir eru í
framleiðslu í öllum greinum landbúnaðar.
Þess vegna er það svo gríðarlega mikilvægt
að þingmenn og sveitarstjórnarfólk sýni
landbúnaðinum, einni af undirstöðuatvinnugrein
íslenskrar þjóðar, meiri athygli og áhuga. Því allt
sem viðkemur starfsskilyrðum landbúnaðarins
eru jú mannanna verk sem mögulegt er að
lagfæra eða færa til betri vegar. Þar er af mörgu
að taka, líkt og ég kom að í upphafi, svo sem
eins og einföldun regluverks sem nýtist okkur
hér á norðursvæði Evrópu. Stefnum ótrauð
áfram að tæknivæðingu og nákvæmnisbúskap
með því að nýta okkur tæknina, m.a. til framfara
í eftirliti. Hvers vegna má ekki endurnýta
örmerki á Íslandi þar sem við sendum ekki
gripi í sláturhús þvert yfir landamæri? Er það
bara af því að Evrópusambandið segir nei? Eða
gleymdist að óska eftir undanþágu þegar málið
var rætt á meðal jakkafataklæddu mannanna í
Brussel?
Svo kemur skilningur ESA að breyta
þurfi reglugerð um blóðmerahald, sem þegar
var búið að breyta nýlega og átti að gilda til
2026. Frá og með 1. nóvember er reglunum
breytt og engar leiðbeiningar um hvað verður,
hvorki frá ráðuneytinu né eftirlitsstofnuninni.
Erum við virkilega búin að framselja svo
mikið af fullveldinu að við þurfum að spyrja
lögfræðingana í Brussel hvað við megum gera
og hvað ekki? Í hvers hlut kemur það þá að
gæta hagsmuna Íslands og norðurhéraða innan
Evrópu með fullnægjandi og kröftugum hætti?
Önnur ríki virðast ná að setja inn ýmiss konar
fyrirvara og stefnur á grunni dreifðra byggða
og erfiðra aðstæðna, allt til þess að gæta að og
tryggja starfsskilyrði þeirra atvinnugreina sem
stundaðar eru innan þeirra landamæra.
LEIÐARI
Mínus
Fæðuöryggi er einn af hornsteinum
þjóðaröryggis, segir Johan Åberg hér í
tölublaðinu en hann er fulltrúi finnsku
bændasamtakanna í Neyðarbirgðastofnun
finnska ríkisins. Þar í landi eru alltaf á
öllum tímum til neyðarbirgðir af fæðu,
orku, lyfjum, lækningavörum og öllu því
sem þarf til að halda samfélaginu gangandi
í níu mánuði ef allar aðfangakeðjur lokast.
Aðrar þjóðir líta nú til finnska kerfisins
enda eru margar þjóðir að átta sig á að þær
hefðu kannski ekki átt að leggja niður sínar
neyðarbirgðastöðvar.
Á Íslandi er engin neyðarbirgðastofnun
en vinna við að greina nauðsynlegar
birgðir og meta stöðu þeirra liggur nú hjá
ráðuneytum í framhaldi af útgáfu skýrslu
starfshóps um neyðarbirgðir sem kom út
síðasta haust. Þeirri vinnu átti að ljúka á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs en lítið hefur
heyrst um framgang þeirrar vinnu.
Á meðan eru ekki gildandi nein
stjórnvaldsfyrirmæli um lágmarksbirgðir
matvæla eða aðfanga til matvælaframleiðslu
í landinu. Hér eru birgðir af matvælum sem
liggja hjá framleiðendum, afurðastöðvum,
innflytjendum, verslunum og neytendum.
Í þessu samhengi er þó eitt
deginum ljósara; hér mun aldrei ríkja
neitt fæðuöryggi ef við höfum ekki
frumframleiðendur matvæla. Landbúnaður
er ein af grunnstoðum samfélagsins,
rétt eins og heilbrigðis- og skólakerfið.
Hlutverk þess er að stuðla að sjálfbærni
landsins, styrkja áfallaþol samfélagsins og
viðhalda matvælaöryggi. Bændur þjóna því
veigamikla hlutverki að byggja undir grunn
þjóðaröryggis í landinu.
Það er skrítið að meginstoðum
samfélagsins sé haldið uppi með
láglaunastörfum. Starf bónda, kennara og
sjúkraliða eiga það sameiginlegt að vera illa
borgaðar stöður sem ekkert samfélag kemst
samt af án. Þjóð er ekkert án menntakerfis,
við lifum vart án heilbrigðiskerfis, enginn
kemst af án matar. Það sem skilur að
fyrrnefndar starfsstéttir, kennarann og
sjúkraliðann annars vegar og bóndann hins
vegar, er að þær fyrrnefndu geta og hafa
barist fyrir sínum kaupmætti reglulega í
gegnum kjarasamninga. Samningar ríkis
við bændur eru hins vegar, eins og Jóhannes
Sveinbjörnsson, dósent við LbhÍ og bóndi,
bendir á hér í blaðinu, bundnir til langs tíma
og taka ekki mið af sveiflum í kostnaði
við framleiðslu búvara. Bændur hafa enga
tryggingu fyrir stöðugum kaupmætti,
heldur þurfa þeir að taka af launum sínum
neikvæða þróun allra helstu kostnaðarliða.
Enda sýna tölur Bændasamtaka Íslands
að meðalmánaðarlaun bænda með búfé er
fyrir neðan núllið. Bóndinn sem útvegaði
þér lambalærið í fyrra krækti sér í skuldir
fyrir ómakið, fékk mínus 35.000 krónur
í mánaðarlaun. Það sama má segja um
bóndann sem skaffaði í hamborgarann,
hann borgaði einnig með sér og fékk mínus
366.000 krónur í mánaðarlaun.
Ríkisstjórnin ákvað að koma á fót
starfshópi þriggja ráðuneytisstjóra til að
leggja mat á stöðu landbúnaðar í framhaldi
af neyðarfundi sem Bændasamtökin
boðuðu með matvælaráðherra og
fjármálaráðherra fyrir tveimur vikum. Ekki
fylgir tilkynningu hvenær niðurstöðu er
að vænta, hvort það verði innan einhverra
vikna eða mánaða. Á meðan munu bændur
halda áfram sínu góðgerðarstarfi og
framleiða mat fyrir þjóðina á eigin kostnað.
Ráðuneytisstjórarnir munu varla sætta sig
við að borga tímakaupið sitt úr eigin vasa
eins og bændur eru að gera. Og á meðan
við bíðum hriktir í stoðum fæðuöryggis
þjóðarinnar.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
ritstjóri.
Starfsumhverfi
Kornskurður á Búlandi í Austur-Landeyjum haustið 1981. Mynd sem birtist í þriðja tölublaði Freys árið 1982. Þar er grein sem segir frá sjö bændum
í Austur-Landeyjum sem tóku sig saman um að rækta korn á alls ellefu hekturum. Meðaluppskeran var yfir ellefu tunnur (hkg) á hektarann.
Þetta framtak þótti merki um þá sókn sem átti sér stað í kornrækt á þessum árum. „Þótt þráðurinn hafi ekki slitnað um áratuga skeið í íslenskri
kornrækt verður að segja að litlu hafi mátt muna að svo færi,“ skrifar Matthías Eggertsson, höfundur greinarinnar og ljósmyndarinn. Hann var
einn ritstjóra Freys. /ÁL
GAMLA MYNDIN
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
Bændablaðið kemur út 23 sinnum á ári.
Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim
í pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (23. tölublöð) kostar þá kr. 14.900
með vsk. Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar kr. 11.900 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Borgartún 25, 4. hæð - 105 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Kt: 631294-2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
Ritstjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir (ábm.) gudrunhulda@bondi.is – Sími: 563 0300 – Blaðamenn: – Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is
Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Steinunn Ásmundsdóttir steinunn@bondi.is
Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 866 3855
Netfang auglýsinga: thordis@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: 33.000 – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621