Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Hollenski garðyrkjufræðingurinn
Alexander Boedijn segir Íslend-
inga geta lært af Hollend-
ingum þegar kemur að þróun
tæknilausna í átt að hring-
rásarkerfum gróðurhúsa, sem
er einmitt hans sérsvið.
Boedijn var þátttakandi í hring-
borðsumræðum sem Sjávarklasinn
skipulagði í tengslum við Nordic
Circular Summit, sem var haldin í
aðdraganda Hringborðs norðurslóða
(Artic Circle).
Boedijn er fræðimaður sem
starfar við Business unit Greenhouse
Horticulture og tengist Wageningen-
háskólanum í Hollandi, sem er vel
virtur landbúnaðarháskóli. Hann
var tekinn tali eftir málstofuna,
sem haldin var í Sjávarklasanum
í Reykjavík.
Hollendingar stórtækir
í gróðurhúsaræktun
Hann segir að gróðurhúsaræktun
á Íslandi sé í grunninn sams konar
og í Hollandi, unnið sé með sömu
grundvallarefnin. Munurinn sé
auðvitað sá að í Hollandi sé þessi
grein afar stór og háþróuð – jafnvel
á evrópskan mælikvarða, með
gróðurhúsaræktun á um 10 þúsund
hekturum lands.
Til samanburðar sé íslensk
ræktun á minna en 20 hekturum.
Því sé gagnlegt fyrir Íslendinga
að hagnýta sér þá þekkingu sem
hafi orðið til í Hollandi í átt okkar
að íslensku hringrásarhagkerfi, sem
stjórnvöld hafi markað stefnu um.
Hringrásarkerfi íslenskrar ylræktar
sé einn liður í þeirri vegferð.
Verðmæt næringarefni
fara til spillis
Að sögn Boedijn er brýnt að hraða
þessari þróun sem mest því verðmæt
næringarefni sem nauðsynleg
eru til ræktunar – og eru jafnvel
takmörkuð auðlind – fara í miklu
magni til spillis í því kerfi sem hefur
verið við lýði. Þau skolist gjarnan
út úr kerfinu sem úrgangur.
Samvinna á milli landa skipti
miklu, þar sem bændur, fræðimenn,
stjórnvöld, framleiðendur og sölu-
aðilar á aðföngum deili þekkingu og
reynslu. Hann segir hugmyndafræði
hringrásarkerfis gróðurhúsa ræktunar
horfi til þess að loka þeirri rás
tiltekinna efna sem rata í dag inn
og út úr gróðurhúsum; eins og
vatns, næringarefna, gróðurmoldar,
koltvísýrings og plastefna.
Markmiðið sé að ræktunin verði
minna háð aðföngum efna sem eru
til í takmörkuðum mæli og minnka
sóun sem nálgast er með sjálfbærni.
Spurður um framgang hringrásar
hugmyndafræðinnar í hollenskri
ylrækt segir hann að með þróun á
hátækni í stórum gróðurhúsum, sem
hafi verið í gangi í allnokkur ár, sé
samhliða þróun jafnt og þétt í þessa
átt sömuleiðis.
Og áður en farið var að leggja upp
með hringrásarkerfi sem hagnýta
hugmyndafræði í gróðurhúsum.
Nú sé hún einnig komin inn í
stefnumótun stjórnvalda, auk þess
sem farið sé að vinna að ýmsum
lausnum í aðfangakeðjunni.
Möguleikar á meiri skilvirkni
Hann segir að hvatar til umskipta yfir
nýtt kerfi komi bæði frá stjórnvöldum,
einnig beint úr aðfangakeðjunni og
bændum sjálfum – sem sjá möguleika
á meiri skilvirkni. Bændur eigi kost
á hærra verði fyrir sínar afurðir með
því að geta flaggað vottunum um slík
framleiðslukerfi og stjórnvöld eru háð
markmiðum Evrópusambandsins
(ESB) í slíkum umhverfismálum.
ESB er með skýra áætlun um
framvinduna í átt að hringrásarkerfi
og hún leitar hægt en örugglega inn
í löggjöfina.
Boedijn segir helstu áskoranir á
leiðinni til hringrásarhagkerfisins
sé hversu framleiðslukerfin séu
háð efnum sem séu ýmist til í
takmörkuðum mæli, eins og áburðar-
efni, eða þurfi að skipta út vegna
stefnubreytinga í umhverfismálum.
Dæmi um það er jarðefnaeldsneyti
sem orkugjafi.
Kerfisbreyting yfirvofandi
Yfirvofandi sé kerfisbreyting, á
aðfangakeðjunni, sem hann telur að
verði mikil áskorun í öllum löndum.
Umskiptin hjá hverjum og
einum framleiðanda geta líka verið
kostnaðarsöm á meðan verið sé að
færa sig á milli kerfa – og á þeim tíma
geti verið erfitt að keppa í verði við
sambærilegar vörur.
Þegar Boedijn er spurður um hvað
hann telji að það muni taka langan
tíma fyrir þessi umskipti að eiga
sér stað, þannig að hringrásarkerfi í
gróðurhúsaræktun verði orðin almenn,
segir hann að það sé í raun bara
spurning um hversu mikið stjórnvöld
vilji skuldbinda sig til að gera. Ljóst
sé að metnaðurinn sé til staðar og ef
hægt verði að leiða áformin í lög mun
komast alvöru hreyfing á málin.
Tæknin sé í raun til staðar, en
líklega muni taka um fimm til tíu
ár fyrir aðfangakeðjur að verða
tilbúnar með valkosti af hæfilegri
stærðargráðu.
Stjórnvöld þurfi að setja lög og
reglur, en einnig styðja beint við
þessa þróun. Nú þegar hafi stjórnvöld
í Hollandi gefið út það markmið að
á árinu 2030 muni hafa dregið úr
innflutningi á hrávöru um 50 prósent.
Það markmið hafi hins vegar ekki
verið útfært, svo ekki sé vitað hvað
það þýðir fyrir hrávöruna sem flutt er
inn til ylræktar í Hollandi.
Tækniþekking Hollendinga
Boedijn telur að Íslendingar geti sótt
mikið í tækniþekkingu Hollendinga,
á leið þeirra að hringrásarhagkerfinu.
Málið hafi reyndar borið á góma á
málstofunni Nordic Circular Summit.
Hann hafi þar greint frá þeirri miklu
grósku sem sé þar í tækni- og
nýsköpunargeiranum hvað þetta
varðar. Þeir íslensku garðyrkjubændur
sem séu á þeim buxunum að reisa
hátæknivætt hringrásargróðurhús, geti
horft þangað.
Þó sé það ekki þannig að sömu
aðstæður séu til staðar í báðum
löndum. Hollendingar leiti leiða til
orkuskipta, en stór hluti framleiðenda
í Hollandi reiðir sig á jarðgas til að
knýja sín hús. Hann segir að um 25–30
jarðhita- holur séu í Hollandi en dýrt
sé að hagnýta jarðhitann og hann
sé ekki alls staðar í boði. En verið
sé að skoða marga umhverfisvæna
orkukosti. Á dagskrá Boedijn í
Íslandsheimsókninni var meðal annars
að skoða garðyrkjustöðina Lambhaga.
Hann segist hafa verið mjög hrifinn af
því sem hann sá þar, eins og til dæmis
nýjungar við ræktunina á salatinu –
þar sem eigandinn hafi innleitt sitt
eigið framleiðslukerfi.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Hollenski garðyrkjufræðingurinn Alexander Boedijn tók þátt í hringborðs-
umræðum á málstofunni Nordic Circular Summit, þar sem hringrásarkerfi
í gróðurhúsum bar á góma. Mynd /smh
Garðyrkja:
Hringrásarkerfi í ylrækt
– Hollenskur fræðimaður telur að nauðsynlegar kerfisbreytingar muni taka 5–10 ár
Boedijn er fræðimaður sem starfar við Business unit Greenhouse Horticulture
og tengist Wageningen-háskólanum í Hollandi, sem hér sést, sem talinn er
einn fremsti háskóli heims á sviði landbúnaðar. Mynd / Wikipedia
Frá hringborðsumræðum Nordic Curcular Summit í október.
LÍF&STARF
Sláturfélag Suðurlands leitar að starfsmanni í viðhalds- og tæknideild félagsins
á Selfossi. Við leitum að kraftmiklum og jákvæðum einstaklingi til að bætast
í öflugan hóp SS fólks á góðum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennt viðhald á búnaði og húsnæði starfsstöðvarinnar
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af viðhaldsvinnu
• Skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt
• Jákvæðni, góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
Áhugasamir sæki um starfið á Alfred.is - Umsóknarfrestur til 13. nóvember nk.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Benedikt Benediktsson í netfangi benedikt@ss.is
Sláturfélags Suðurlands er 115 ára, öflugt og framsækið matvælafyrirtæki í eigu búvöruframleiðanda á
Suður- og Vesturlandi og almennra hluthafa. Höfuðstöðvar þess eru í Reykjavík og þar eru auk skrifstofu,
markaðs- og söludeildir. Á Hvolsvelli er meginhluti kjötiðnaðar staðsettur ásamt frystihúsi og vörudreifingu
kjötvara. Á Selfossi rekur félagið sláturhús ásamt úrbeiningu á kjöti og pökkunarstöð.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á heimasíðu þess, www.ss.is
Starf í tæknideild SS á Selfossi