Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 43
Davíð Lúther Sigurðarson
Davíð Lúther Sigurðarson er markaðsmaður og gullfiska-
bóndi og verður með erindi um stöðu samfélagsmiðla í dag og
notkun þeirra á sem einfaldastan hátt og aðrar skemmtilegar
pælingar.
Guðný Helga Björnsdóttir og Jóhann Magnússon
Guðný Helga Björnsdóttir og Jóhann Magnússon búa
á Bessastöðum við Hrútafjörð þar sem þau reka kúabú,
hrossarækt, skógrækt og ferðaþjónustu. Urðu forvitin um
auglýsingu RML um verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður,
sóttu um þátttöku og komust inn. Í erindinu mun Guðný fara
yfir hvers þau hafa orðið vísari.
Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir og Óli Finnsson
Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir er garðyrkjubóndi hjá
Garðyrkjustöðinni Gróður og Óli Finnsson er garðyrkjubóndi
hjá Garðyrkjustöðinni Heiðmörk. Þau segja frá sinni reynslu
af því að vera nýliði í garðyrkju.
Hjálmar Gíslason
Hjálmar Gíslason er stofnandi og framkvæmdastjóri GRID
ehf., en það er fimmta sprotafyrirtækið sem hann setur á fót.
Hjálmar starfaði áður sem framkvæmdastjóri vörustjórnunar
hjá Qlik, eftir kaup Qlik á fyrirtækinu DataMarket sem hann
stofnaði 2008. Hjálmar er gagnanörd og frumkvöðull af lífi og
sál, en GRID er fimmta hugbúnaðarfyrirtækið sem hann stofnar.
Erindi Hjálmars mun fjalla um þessa gervigreind.
Ísak Jökulsson
Ísak Jökulsson er bóndi á Ósabakka á Skeiðum. Hann er
búvísinda- og búfræðimenntaður frá LbhÍ. Hann er stjórnarmaður
í Samtökum ungra bænda. Ísak hefur mikinn áhuga á sjálfbærari
landnýtingu og matvælaframleiðslu. Erindi hans mun fjalla
um hringrásakerfi næringarefna og möguleikana því tengdu.
Margrét Gísladóttir
Margrét Gísladóttir er með BS gráður í efna- og
matvælafræði frá HÍ og MS gráðu í matvælafræði frá
Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum (KVL
nú KU) á Friðriksbergi í Danmörku. Hún hóf störf hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (nú Matís) árið 1998 og
hefur frá þeim tíma unnið að mörgum verkefnum sem tengjast
nýtingu á hliðarhráefni aðallega úr fiskvinnslu með áherslu
á prótein. Undanfarin ár hefur hún starfað að verkefnum er
tengjast nýpróteinum (e: alternative proteins) meðal annars
úr grasi, baunum og skordýrum. Erindi Margrétar mun fjalla
um próteingjafa morgundagsins.
Jóhannes Sveinbjörnsson
Jóhannes Sveinbjörnsson er dósent við LbhÍ, þar
sem aðalviðfangsefni hans í rannsóknum og kennslu eru
fóðurfræði, framleiðslukerfi í sauðfjárrækt og fæðuöryggi.
Hann rekur ásamt fjölskyldu sinni bú að Heiðarbæ 1 við
Þingvallavatn, þar sem aðalbúgreinarnar eru sauðfjárrækt
og kjúklingarækt og silungsveiði er einnig mikilvæg
aukabúgrein. Erindi Jóhannesar mun fjalla um áskoranir í
íslenskum landbúnaði í breyttri heimsmynd
Gestafyrirlesarar á afmælisráðstefnu RML
Hér koma í myndaröð nöfn annarra fyrirlesara en starfsmanna RML auk kynningar á umfjöllun þeirra hér að neðan. Frá vinstri: Davíð Lúther Sigurðarson, Guðný Helga Björnsdóttir og Jóhann Magnússon,
Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir og Óli Finnsson, Hjálmar Gíslason, Ísak Jökulsson, Margrét Gísladóttir og Jóhannes Sveinbjörnsson.
Jude L. Capper, PhD, DSc
(h.c.) ARAgS er prófessor
í sjálfbærri nautakjöts-
og sauðfjárframleiðslu við
Harper Adams háskólann
(HAU) í Shropshire, Bretlandi;
og er einnig sjálfstæður
ráðgjafi um sjálfbærni
búfjárræktar. Rannsóknir Jude beinast að
sjálfbærni búfjárræktar, með áherslu á
mjólkurframleiðslu, nautakjötsframleiðslu
og sauðfjárrækt.
Hún vinnur nú að verkefnum sem tengjast
losun gróðurhúsalofttegunda í nautakjöts- og
sauðfjárframleiðslu á Bretlandi; sjálfbærni
framleiðslukerfa í sauðfjárrækt, og áhrif
tvínytja kúakynja á sjálfbærni framleiðslukerfa
í mjólkur- og nautakjötsframleiðslu.
Erindi Jude á afmælisráðstefnu RML
mun fjalla um hlutverk búfjár í sjálfbærri
matvælaframleiðslu, þar á meðal hvernig
bændur geta dregið úr umhverfisáhrifum.
Hún mun einnig fjalla um staðreyndir og
aðferðir sem geta nýst til að takast á við
algengar rangfærslur í umræðu um sjálfbærni
í framleiðslu á kjöti og mjólk.
Annar aðalfyrirlesara afmælisráðstefnu
RML er Dr. Jude L. Capper
Jude L. Capper.
Hlutverk búfjár í sjálfbærri
matvælaframleiðslu
Mynd - Halla Eygló Sveinsdóttir.
Mynd - Anna Guðrún Grétarsdóttir.
Jens Bligaard er fram-
kvæmdastjóri hjá Seges
í Danmörku.
Jens er menntaður bú-
fræðingur sem fór í fram-
haldsmenntun í bú-
vísindum og doktorspróf
í hermilíkunum og skordýra-
fræðum. Hann hefur starfað við rannsóknir
við háskólann í Árósum og sem stjórnandi
hjá dönsku ráðgjafarþjónustunni SEGES.
Jens er núna í forsvari fyrir ESGreenTool
Climate hjá Seges en það er verkfæri sem
nýtist bæði vegna útreikninga á kolefnisspori
í landbúnaði en einnig sem búrekstrartól.
Jens mun í erindi sínu fjalla um ESGreen-
Tool, hvernig það hefur verið byggt upp og
mikilvægi þess í dönskum landbúnaði sem
er einn sá öflugasti í Norður-Evrópu.
Annar aðalfyrirlesara afmælisráðstefnu
RML er Jens Bligaard.
Jens Bligaard.
ESGreen tool Climate
– Útreikningar á kolefnisspori og búrekstrartól
Mynd - Halla Eygló Sveinsdóttir.
RML Í 10 ÁR