Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Rúmlega hundrað börn sækja
nám í nýjum leikskóla sem tók
til starfa í Rangárþingi eystra í
haust.
Leikskólinn Aldan á Hvolsvelli
er átta deilda leikskóli og getur
tekið á móti 180 börnum.
Útisvæði skólans endurspeglar þá
staðreynd að sveitarfélagið er mikið
landbúnaðarsvæði.
„Framkvæmdir gengu virkilega
vel og voru að mestu innan tíma-
og fjárramma. Undanfarin tvö ár
hafa ekki verið auðveld fyrir börn,
foreldra og starfsmenn leikskólans.
En vegna myglu þá þurfti að
bregðast við og skipta deildum
upp á nokkra staði í þorpinu. Engu
að síður þá gekk þetta allt saman
ótrúlega vel. Það er einvörðungu
vegna þess að allir lögðust á eitt.
Útisvæðið er algjörlega
framúrskarandi að mínu viti og
talar mjög vel í þær áherslur sem
við hjá sveitarfélaginu erum með
þegar kemur að börnunum okkar.
Skapandi og frjótt samfélag,“
segir Anton Kári Halldórsson,
sveitarstjóri Rangárþings eystra.
Aðalheiður E. Kristjánsdóttir
og Jóhann Pétursson, landslags-
arkitektar hjá Landmótun, hönnuðu
útisvæðið ásamt Huldu Davíðsdóttur
og Írisi Reynisdóttur en hugmyndir
starfsfólks leikskólans voru hafðar
til hliðsjónar við hönnun.
Þar má m.a. finna íslenskar
fjárréttir, fjölbreytt gróðursvæði
og svæði til matjurtaræktar.
„Náttúrulegur efniviður og frjáls
leikur með hugmyndaflug barnanna
að vopni var áherslupunktur
leikskólastarfsmanna sem var
ánægjulegt að vinna með og útfæra.
Náttúruleikurinn er byggður
upp með efnivið úr nærliggjandi
skógrækt sem og tilfallandi grjóti
af svæðinu,“ segir Aðalheiður.
/ghp
LÍF&STARF
Fjölskylduviðburður um mosa og votlendi
Náttúruminjasafn Íslands og Landgræðslan standa fyrir fjölskylduviðburði
um mosa og votlendi sunnudaginn 5. nóvember nk. í Perlunni í Reykjavík.
Í Perlunni fer fram sýningin Vatnið í náttúru Íslands sem Náttúruminjasafnið
stendur fyrir. Fyrsta sunnudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölskylduviðburði
á sýningunni þar sem gestum gefst færi á að tengjast náttúrunni á óvenjulegan
og skemmtilegan hátt. Nú í byrjun nóvember mun viðburðurinn tengjast mosum
og votlendi með sýningunni Mosar í mýrinni sem er hluti af hátíð líffræðilegrar
fjölbreytni 2023, að því er fram kemur á vef Náttúruminjasafnsins.
Viðburðurinn fer fram á 2. hæð Perlunnar milli kl. 14 og 16 sunnudaginn 5.
nóvember. Aðgangur er ókeypis. /ghp
Skógræktarfélag Íslands gaf nýverið
út yfirgripsmikla bók sem fjallar
um sögu samvinnu Íslendinga og
Norðmanna á sviði skógræktar.
Hér er farið allt aftur til landnáms
fram til okkar daga. Stærstur hluti
bókarinnar gerir grein fyrir 32
skiptiferðum sem voru gerðar milli
Noregs og Íslands á árunum 1949
til 2000. Hópar Íslendinga fóru
sextán sinnum til Noregs og komu
norskir hópar til Íslands jafn oft. Þó
þetta væru skiptiferðir var ljóst að
Íslendingar höfðu mun meira að læra
af Norðmönnum en öfugt, enda þeir
síðarnefndu fagmenn á meðan við
vorum byrjendur.
Skógræktarfólk öðlaðist tækifæri
til að fá verklega kennslu á hliðum
skógræktar sem ekki voru þróaðar
hérlendis. Þar má nefna skógarhögg
og grisjun, en timburvinnsla er öflug
atvinnugrein í Noregi.
Norðmenn sem komu til Íslands
gátu bent íslensku skógræktarfólki
hvað hægt væri að gera betur, en
þegar hingað var komið var ferðast
um mismunandi skógræktarsvæði.
Þá gafst Norðmönnum færi á að
komast í snertingu við trjátegundir
sem sjaldgæfar eru á heimaslóðunum.
Óskar Guðmundsson er höfundur
bókarinnar, en hún er bæði á íslensku
og norsku. Þá er hún liðlega 330 síður
í stóru broti – ríkulega myndskreytt
og aðgengileg. Hérna býðst lesendum
innsýn í þróun menningar í kringum
íslenska skógrækt, enda hefur
samvinna Íslendinga og Norðmanna
haft mikil áhrif á mótun greinarinnar
hérlendis. Kjörgripur fyrir alla sem
hafa áhuga á skógrækt. /ÁL
Leikskólinn Aldan á Hvolsvelli getur tekið á móti 180 börnum. Mynd / Aðsend
Rangárþing eystra er mikið landbúnaðarsvæði og óhjákvæmilegt að stór hluti nemenda Öldunnar tengi sterkt við
sveitastörf og ræktun. Það endurspeglast í mótun útisvæðis hins nýja leikskóla. Mynd / Stefán Friðrik
Hvolsvöllur:
Landbúnaður innblástur leiksvæðis
Bókaútgáfa:
Frændur fagna skógi
Teiknar íslensku húsdýrin
Katrín (t.h) með nýja plakatið sitt um íslensku húsdýrin sem hún var að
teikna og gefa út. Mynd / mhh
Listakonan Katrín J. Óskarsdóttir
í Miðtúni við Hvolsvöll gaf nýlega
út veggspjald með íslensku
húsdýrunum.
„Viðtökurnar hafa verið mjög
góðar, teikningarnar koma út
algerlega eins og ég teikna þær og
prentun, pappír og allur frágangur
er til fyrirmyndar. Svona plakat er
mjög fræðandi fyrir t.d. skóla og
leikskóla þar sem hægt er að sjá öll
dýrin saman sem teljast til íslensku
húsdýranna í réttum lit og útliti.“
Katrín, sem er með vinnustofu
heima hjá sér, teiknar flesta daga
en auk dýranna teiknar hún líka
andlitsmyndir. „Núna er ég að teikna
íslensku sauðalitina en hugmyndin
er að gefa út plakat með þeim líka.
Í þeirri vinnu hef ég kynnst mörgum
sauðfjárbóndanum en þrátt fyrir að
hafa alist upp í sveit þar sem voru
meðal annars kindur hef ég fræðst
ótrúlega mikið um sauðkindina og
komist að því að kind er ekki sama
og kind,” segir Katrín hlæjandi.
Hægt er að skoða verk Katrínar
á Facebook-síðum hennar, annars
vegar íslensku húsdýrin og hins
vegar Fólk/People Art Gallery.
Nýja húsdýraplakatið fæst m.a. í
Sveitabúðinni Unu á Hvolsvelli,
í bókabúðum víða um land og í
Húsdýragarðinum. /mhh