Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Fossraf ehf. óskar eftir að ráða til starfa aðila sem hefur reynslu af rafvirkjun.
Til greina kemur að ráða inn nema samhliða öðrum ráðningum. Við leitum
að starfsfólki sem er laghent og fellur vel að góðum hópi starfsfólks okkar.
Starfssvið
• Almenn rafvirkjun.
• Þjónustuheimsóknir til viðskiptavina.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Rafvirki, rafeindavirki eða aðili með góða reynslu.
• Drifkraftur og hæfni til að leiða verkefni og/eða hópa.
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
Fossraf ehf. er að hluta í eigu Fastus ehf. og á sameiginlegu tæknisviði starfa
nú ríflega 50 tæknimenn. Félagið þjónustar mörg af stærri fyrirtækjum og
stofnunum landsins. Hjá félaginu er samhent og virkt starfsmannafélag.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Birkir Pálsson, birkir@fossraf.is og í síma 897-1855.
RAFVIRKJAR
-
-
-
B
Æ
TI
EF
N
I
Aldrei hefur verið þýðingarmeira að nota
bætiefni í eldsneytið, hvort sem er í
bensín eða dísel. Motul framleiðir
framúrskarandi efni sem hafa jákvæð áhrif
á eldsneytiseyðslu og mögulegar bilanir.
Á TÆKIÐ ÞITT
MOTUL Á ÍSLANDI SÍM 462-4600 MOTUL@MOTULISLAND.IS
Við erum einnig á Reyðarfirði
Sendum vörur um land allt
Ber eru til dæmis náttúruauðlind
sem Íslendingar hafa nýtt óspart í
gegnum tíðina og í Finnlandi er sala
bláberja að skila þúsund milljarða
króna tekjum árlega. Með aukinni
skógrækt hefur einnig orðið vakning í
nýtingu á sveppum og nú eru sveppir
tíndir víða um land. Við erum þó enn
að átta okkur á aðstæðum og getum
nýtt þessa matarkistu enn betur.
Með fleiri skógum skapast óteljandi
tækifæri.
„Suðfjárrækt“
Agnes Geirdal hefur verið
býflugnabóndi í rétt tæpan áratug.
Að vera bóndi er lífsstíll en að vera
býflugnabóndi er suðandi hamingja.
Það er einmitt hljóðsins vegna að
fólki fannst viðeigandi að kenna
búgreinina við „suðfé“.
Agnes sagði skemmtilega frá
lífsferli hunangsflugnanna, allt
frá tilhugalífi, skemmtanahaldi
og lífshættulegum systkinaerjum.
Það er ekkert grín að vera býfluga.
Samfélagið er mjög stéttskipt og
allir hafa sitt hlutverk. Líf flugnanna
snýst um að þjóna drottningu með
einræðistilburði og felst fyrst og
fremst í að fljúga á milli blóma og
koma heim með sætindi handa henni
sem kallað er hunang.
Þótt drottningin sé stór þá er hún
ekki jafn heimtufrek og manneskjan,
en til að þóknast henni þurfa 12 flugur
að strita allt sitt líf til að útvega
hunang í eina teskeið. Hunang er
munaðarvara.
Vöggufífill
Cornelis Aart Meijles, sérfræðingur
hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins, sagði frá mörgu fróðlegu í
fyrirlestri sínum sem nefndist „Verður
bóndinn læknir framtíðarinnar?“
Grasrótarstarf þrífst best í heilbrigðum
jarðvegi.
Þróunin í landbúnaði um heim
allan hefur haft þá tilhneigingu að
drepa jarðveginn jafnt og þétt. Hann
fær ekki að dafna með allri þeirri flóru
og fánu sem til þarf. Lífið undir fótum
okkar á að iða af örverum, svepprótum
og vera uppfullt af næringarefnum
sem plönturnar nýta þegar þær stækka
með tilstuðlan sólarinnar. Matvæli í
dag eru mun rýrari af næringarefnum
og allt öðruvísi en þau voru áður en
dauðhreinsaður landbúnaður kom
við sögu með öll sín kemísku efni
og uppróti.
Við megum ekki líta niður til
jarðvegsins, hann er undirstaða allrar
ræktunar. Cornelis endaði erindi sitt
á því að segja frá vöggufífli, en það
er planta sem mögulega getur verið
ný nytjaplanta til fóðurs hér á landi.
Kornrækt
Egill Gautason, sérfræðingur hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði
frá mikilvægi skjóls í kornrækt.
Uppskera á norðlægum stöðum ræðst
mikið af verðri.
Með skjóli af trjám má jafna vind
og þar með hækka hitastig. Þar sem
sumur eru stutt, eins og á Íslandi, má
lítið út af bera ef ræktun á að skila
þeirri afurð sem vænst er, svo sem í
ræktun korns. Korn hefur lengi verið
ræktað á Íslandi og eru aðstæður
mjög misjafnar eftir landshlutum.
Alla jafna gera skjólbeltin mikið gagn
en það er þó ekki algilt.
Góð kornuppskera sýnir sig best
í þunga kornsins og því lengur sem
hægt er að skýla plöntunni aukast
líkur á að korn þroskist og þyngist.
Nánar er fjallað um kornrækt í
nýlegri skýrslu sem ber nafnið
„Bleikir akrar“.
Samantekt
Matarkista skógarins er auðlind sem
við getum nýtt okkur í mun ríkari
mæli en verið hefur.
Víða nýtist skjólið til að rækta
matvörur til manneldis, eins og
dæmin sýna hjá frumkvöðlunum í
Vallanesi, en löngu er orðið tímabært
að gefa skógarbotninum gaum og
leita markvisst að sveppum, berjum
og sinna býflugnarækt. Skógurinn og
nytjar hans eru grundvallarþættir í
sjálfbærni þjóðar.
Flaggað var að morgni við félagsheimilið þinghamar. Gestir koma á málþingið
einn af öðrum. Mynd / HGS
Jóhann Gísli, formaður skógarbænda, færir Gunnari, formanni BÍ,
þakklætisvott, ilmandi körfu með matvælum út skóginum, fyrir góð störf í
þágu skógarbænda. Mynd / Bjarni Diðrik Sigurðsson