Bændablaðið - 02.11.2023, Page 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Sífellt hærra hlutfall mjólkur kemur frá kúabúum með mjaltaþjóna. Mynd /Lely
Byggt á samantekt tæknihóps NMSM. Þróun útbreiðslu mjaltaþjónabúa á
Norðurlöndunum frá 1998.
Þá er ekki tekið tillit til heimanota
á mjólk eða mögulegra áfalla vegna
sjúkdómameðhöndlunar svo dæmi
sé tekið. Í samanburði tæknihóps
NMSN er hins vegar notast við
upplýsingar um alla innvegna mjólk
til afurðastöðvanna í löndunum og
svo heildarfjölda skráðra mjólkurkúa
í löndunum.
Þegar þetta er reiknað þannig út
kemur í ljós að sem fyrr eru mestar
afurðir að finna í Danmörku, þar
sem hver kýr er að skila að jafnaði
10.166 kg mjólkur í afurðastöð,
þar á eftir koma sænsku kýrnar
með 9.289 kg og þá þær finnsku
með 8.841 kg. Næstafurðalægstu
kýrnar eru í Noregi, en að jafnaði
eru lögð inn 7.460 kg þar í landi
eftir hverja kú. Íslensku kýrnar eru
langlægstar og ekki með nema 5.746
kg að meðaltali og eru ekki nema
rétt rúmlega hálfdrættingar á við
dönsku kýrnar.
Mjaltaþjónabúum fjölgaði
mest á Íslandi
Það virðist vera lítið lát á fjölgun
mjaltaþjónabúa á Norðurlöndunum
og var fjöldi þeirra kominn í 6.341
í lok síðasta árs og hafði þeim
fjölgað um 544 bú, eða um 9,4% á
framangreindu tveggja ára tímabili.
Það er álíka mikil hlutfallsleg
breyting og verið hefur um nokkurt
skeið. Þróunin hefur þó verið ólík á
milli landanna (sjá bæði mynd og
töflu) og fjölgaði búunum mest á
Íslandi, eða um 14,3% og þar rétt
á eftir kemur Noregur með 13,4%.
Gögnin sýna sem fyrr að þar
sem meðalbúastærðin er að jafnaði
meiri hefur mjaltaþjónabúum
fjölgað hægar. Þetta á sér líklega
þær skýringar að mjaltaþjónar
hafa hingað til hentað síður fyrir
stærri bú. Það kann þó að vera að
breytast núna með tilkomu nýrrar
og ódýrari útfærslu mjaltaþjóna fyrir
stór kúabú. Breytingin felst í því að
mjaltaþjónarnir eru settir saman
á sérstakt mjaltasvæði og kýrnar
reknar til mjalta tvisvar til þrisvar á
dag. Mjaltaþjónar þessara kerfa eru
einfaldari að uppbyggingu og búnaði
og virðist vera töluverður áhugi á
þessari lausn nú um stundir meðal
kúabænda sem eru með stór bú.
Verður áhugavert að fylgjast nánar
með þessari þróun á komandi árum.
Í árslok síðasta árs voru
mjaltaþjónar á 37,7% kúabúa
Norðurlandanna en hæsta hlutfallið
var hér á landi, en um síðustu áramót
var þessi mjaltatækni á 51,7% af
kúabúum landsins. Í öðru sæti listans
eru sænsku búin með 45,5% og þá
koma norsku búin með 42,1%.
Meira en tíu þúsund
mjaltaþjónar!
Fjöldi mjaltaþjóna á Norður
löndunum var 10.381 um síðustu
áramót, sem er aukning um 12,2%
frá árslokum 2020, eða aukning
um 1.130 mjaltaþjóna. Fjöldinn
skiptist nokkuð bróðurlega á milli
landanna utan Íslands og eru flestir
mjaltaþjónar í Noregi, eða 28,5%
þeirra. Næstflestir eru í Svíþjóð, eða
24,7% og í Danmörku eru 22,6%
allra mjaltaþjóna Norðurlandanna.
Finnland er þar skammt undan
með 21,2% en íslensku fjósin eru
eðlilega neðst á þessum lista með
einungis 3,0% mjaltaþjónanna á
Norðurlöndum.
1,6 mjaltaþjónn að meðaltali
Líkt og hér að framan greinir var
10.381 mjaltaþjónn á 6.341 kúabúi
sem gerir að jafnaði 1,6 mjaltaþjóna
á hverju búi. Ekki þarf að koma á
óvart að dönsku kúabúin eru að
jafnaði með flesta mjaltaþjóna, eða
3,4 að meðaltali.
Þar á eftir koma sænsku búin með
2,1 mjaltaþjón að jafnaði og svo þau
finnsku með 1,6 mjaltaþjóna að
meðaltali. Á Íslandi voru að jafnaði
1,2 mjaltaþjónar á þessum búum í
árslok 2022 og 1,1 mjaltaþjónn að
meðaltali í Noregi.
Ísland í sérflokki
Undanfarin ár hefur tæknihópur
NMSM áætlað hlutfall mjólkur frá
mjaltaþjónabúum og samkvæmt
þeim útreikningum þá er nú
svo komið að í öllum löndum
nema Danmörku er meirihluti
framleiddrar mjólkur frá kúabúum
með mjaltaþjóna.
Langhæsta hlufallið er á Íslandi,
eða 68% og svo er Noregur skammt
undan með 63%. Þá er talið að
56% allrar framleiddrar mjólkur í
Finnlandi sé frá mjaltaþjónafjósum
og 52% í Svíþjóð. Langlægsta
hlutfallið er í Danmörku, eða 27%.
Vegna umfangs dönsku mjólkur
framleiðslunnar þá heldur hún
meðaltali Norðurlandanna vel undir
50% og var þetta hlutfall 42% í
árslok 2022 fyrir Norðurlöndin
í heild.
HUGUM AÐ HAUGNUM
Haugdælur og - hrærur
- 6” dælur með þrítengi
- Stillanlegar lengdir
- Að fullu galvaniseraðar
- 6,1 metrar
- 650mm skrúfa
HAUGDÆLUR
HAUGHRÆRUR
776.000 kr. + vsk.
2,4-3,0m: 1.375.900 kr. + vsk.
2,7-3,3m: 1.425.900 kr. + vsk.