Bændablaðið - 02.11.2023, Síða 68
68 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
LESENDARÝNI
Ég legg hér með fram tillögu
sem miðar að því að stórlækka
fjármagnskostnað og afborganir
lána í landbúnaði.
Hún eykur
einnig möguleika
á aðilaskiptum
á bújörðum,
stuðlar að því að
bújarðir haldist í
rekstri og stuðlar
að framþróun
í byggðum
landsins.
Landbúnaður
er ákaflega fjármagnsfrek
atvinnugrein miðað við veltu og
afkomu og fáar atvinnugreinar eru
sambærilegar. Mikið land er oftast
undir, dýrar byggingar, bústofn, tæki
og tól.
Eðli atvinnugreinarinnar er
þannig að það tekur langan tíma
að rækta jörð og bústofn og til að
ná árangri þarf fólk að helga þessu
starfi stóran hluta starfsævinnar.
Þrátt fyrir að vinnuaðstæður verði
sífellt betri er enn þá nauðsynlegt
að geta tekist á við langa vinnudaga
og erfiðisvinnu í bland. Þess vegna
er nauðsynlegt að hefja búskap á
besta aldri og yfirleitt er það áður
en fólk hefur komið sér upp eignum
eða eigin fé. Þannig að kynslóðin
sem tekur við keflinu á hverjum tíma
á yfirleitt ekki miklar eignir til að
setja í þá geysilegu fjárfestingu sem
þarf. Segja má að þegar fólk þarf
að komast í búskap þá er það ekki
nógu efnað og þegar efnahagurinn
er orðinn nægilega góður, er áhuginn
og getan farin að dvína. Þetta er
afgerandi sérstaða sem varla þekkist
í öðrum atvinnugreinum.
Vextir og afborganir lána eru
að sliga marga bændur og blasir
atgervisflótti við og hrun ef ekkert
verður að gert.
Landbúnaðarlán eru að langmestu
leyti fasteignatryggð til 15-25 ára og
svo skemmri lán vegna vélakaupa
til dæmis.
Eðlilegt er að lánstími tengist
endingartíma viðkomandi veðs og
er því eðlilegt að vélalánin séu til 5-7
ára. Lán vegna nýbygginga ættu að
geta verið til 15-30 ára.
En það sem ég ætla að ræða er
landið sjálft sem er undir. Landið
sem bóndinn notar eyðist ekki og
mölur og ryð fá því ekki grandað
og er það því eitthvert besta veð sem
hægt er að bjóða.
Það að hver kynslóð skuli þurfa
að brjótast í gegnum afborganir af
því á tiltölulega fáum árum með
hæstu vöxtum, er ekki rökrétt eða
eðlilegt.
Tillagan er því þessi:
• Stofnaður verði Jarðalánasjóður
með bakstuðningi ríkisins.
Sjóðurinn láni út á bújarðir á
1. veðrétti. Lánin yrðu veitt
samkvæmt reiknireglu sem
þarf að semja, sem miðast við
landþörf viðkomandi bús. Þessi
lán væru með mjög lágum
vöxtum (1% verðtryggð) og væri
ekki gerð krafa um afborganir en
vextir innheimtir. Menn mættu
hins vegar greiða lánin upp eftir
ástæðum.
• Sjóðurinn fjármagni sig á markaði
með skuldabréfaútboðum.
• Ríkið taki á sig mismuninn á
þeim vöxtum sem bændum væri
gert að greiða og þeim vöxtum
sem sjóðnum stendur til boða.
Með því að þessi sjóður væri
kominn með fyrsta veðrétt í
landi, þyrftu aðrir sem lána til
framkvæmda, til dæmis, að sætta
sig við annan veðrétt. Það ætti í
raun ekki að skipta máli, nema að
það yrðu þá að vera enn vandaðri
rekstrarforsendur. Ef til kæmi að
búskapur færi í þrot mundi ferlið
ganga eðlilega fyrir sig og það eina
sem gerist er að landið hefur verið
tekið út fyrir sviga.
Upphæð lána þyrfti að taka
einhvers konar mið af markaðsverði
lands og væri ekki óeðlilegt að
upphæðin væri a.m.k. 500.000
á hektara til að byrja með. Með
þessu móti væri hægt að gjörbreyta
aðstöðu margra eða flestra bænda.
Kostir:
1. Verulega auðveldari ættliðaskipti
og/eða sala
2. Stórlega lækkaður rekstrar-
kostnaður til framtíðar
3. Hægt að ráðast í hagkvæmar
framkvæmdir fyrr
4. Stuðningur við ýmsar greinar
landbúnaðarins verður jafnari
og sanngjarnari (ég reikna með
að allar greinar landbúnaðar geti
notið ef þær nota land undir sinn
rekstur)
5. Betri nýting á stuðningi ríkisins
en augljóst er að ríkið (og svona
sjóður) fær mun betri vaxtakjör
á markaði en einstakir bændur.
Því er um mikinn stuðning að
ræða sem kostar lítið. Á bak við
lánið stendur landbúnaðarland,
sem ætti að geta talist öruggt veð.
6. Einnig má nefna það að svona
kerfi mundi styðja við vilja
Íslendinga um að halda yfirráðum
yfir eigin landi.
Til að leika sér með tölur
þá má setja upp dæmi þar sem
2.000 bújarðir með 200 hektara
land að meðaltali fengju svona
lán. Heildarupphæðin væri 200
milljarðar, en til að setja í samhengi,
þá eru hreinar eignir lífeyrissjóðanna
vel yfir 7.000 milljarðar. Þetta er því
ekki óyfirstíganlegt.
Það er ljóst að til að vel takist til
þarf að vanda vel til verka. Til dæmis
þarf að koma hlutum þannig fyrir
að lækkaðir vextir og greiðslubyrði
komi ekki beint til hækkunar á
söluverði jarða og fari þannig beina
leið aftur út úr greininni til þeirra
sem selja. Þetta er hægt að gera með
ströngum skilyrðum og kvöðum um
búskap á viðkomandi jörðum.
Engu að síður er líklegt að
almennt verð á landi muni fara
hækkandi fremur en hitt og er
eðlilegt að taka tillit til slíks.
Ég vona að þessi pistill hreyfi við
málefnalegri umræðu um þessi mál
og að þetta verði rannsakað til hlítar
og framkvæmt.
Elvar Eyvindsson,
bóndi á Skíðbakka 2.
Elvar
Eyvindsson.
Tillaga um
jarðalánasjóð
Bændablaðið kemur næst út
16. nóvember
Dagur sauðkindarinnar í Rangár-
vallasýslu var haldinn í reiðhöll-
inni Skeiðvangi á Hvolsvelli þann
14. október síðastliðinn.
Fjöldi fólks
kom á staðinn
og fjölmargar
fallegar kindur
sömuleiðis.
Dómar hófust
fyrir hádegi, en
eftir hádegi var
bestu lömbunum
raðað í sæti og gat
þá fólk fengið að
koma við og þukla. Niðurstöður í
þeim fjórum flokkum sem keppt var
í voru eftirfarandi, en efstu lömbum
úr dómum var stillt upp saman og
raðað eftir átaki.
Í flokki hyrndra gimbra var
gimbur frá Efri-Rauðalæk efst með
45,5 stig þegar allar einkunnir eru
lagðar saman, þar af 10,0 fyrir
frampart og 19,0 fyrir læri. Í öðru
og þriðja sæti voru gimbrar frá Teigi
í Fljótshlíð með 19,5 fyrir læri og
45,5 og 46,0 heildarstig.
Í flokki kollóttra gimbra voru
þessir bæir aftur með í efstu sætum,
en efsta gimbrin var frá Teigi. Hún
var með 46,5 heildarstig þar af 19,5
fyrir læri. Í öðru sæti var gimbur frá
Sólvöllum en þar eru ungir bændur
nýbúnir að taka við búi. Þeirra
gimbur var líka með 19,5 fyrir læri
og fékk 45,5 stig í lokaeinkunn. Í
þriðja sæti var gimbur frá Efri-
Rauðalæk með 45,5 stig og 19,0
fyrir læri.
Í flokki hyrndra hrúta var í
efsta sæti hrútur frá Kaldbak á
Rangárvöllum með 89,5 stig en
átakið setti hann í efsta sætið, því
í næstu tveimur sætum voru hrútar
með 90 stig. Allir fengu þeir 19,5
fyrir læri en hrúturinn í þriðja sæti
var líka frá Kaldbak og hann fékk
10,0 fyrir bak. Í öðru sæti var hrútur
frá Kirkjulæk í Fljótshlíð.
Kollóttu hrútarnir voru fæstir
en feikna góðir gripir mættu þar til
sýningar eins og í hinum flokkunum.
Í efsta sæti var hrútur frá Teigi með
90 heildarstig og þar af 19,5 fyrir
læri. Í öðru sæti var hrútur frá ungu
bændunum á Sólvöllum með 89,5
stig og í þriðja sæti hrútur frá Efri-
Rauðalæk, einnig með 89,5 stig.
Ýmislegt fleira var gert en að
bera saman bestu hyrndu og kollóttu
lömbin, en litfegursta lambið
var valið af áhorfendum og fékk
verðlaun fyrir útlit sitt. Verðlaun
voru veitt fyrir ræktunarbú ársins
2022, besta veturgamla hrútinn og
bestu fimm vetra ána samkvæmt
kynbótamati 2022.
Allir verðlaunagripirnir eru
málaðir plattar sem Gunnhildur Art
málaði og eru þeir hver og einn
algjört listaverk. Hún málaði einnig
tvo farandgripi sem eru veittir fyrir
besta veturgamla hrútinn og bestu
fimm vetra ána og mun hann ganga
á milli næstu árin. Þökkum við
Gunnhildi kærlega fyrir hennar
listafögru gripi.
Að þessu sinni var kynnt stuttlega
hvernig forystukindur eru dæmdar
og var eitt lamb og ein fullorðin
ær dæmd eftir dómskalanum sem
til er hjá RML fyrir forystufé.
Sá dómur var þó einungis til gamans
og ekki skráður.
Þá voru margir glæsilegir
happdrættisvinningar dregnir
út og afhentir á meðan fólk var
á staðnum. Þökkum við þeim
fjölmörgu sem styrktu hátíðina með
happdrættisvinningum.
Þá viljum við sérstaklega þakka
Sláturfélagi Suðurlands fyrir þeirra
stuðning, en þeir gáfu öllum gestum
kjötsúpu og einnig fékk þykkasti
bakvöðvi sýningarinnar lambalæri
í verðlaun sem SS gaf.
Við þökkum þeim fjölmörgu
sem gerðu þennan dag svona
skemmtilegan með því að koma
með kindur og til að horfa á kindur.
Sjáumst að ári.
Hulda Brynjólfsdóttir,
fh. Félags sauðfjárbænda
í Rangárvallasýslu.
Hulda
Brynjólfsdóttir.
Aron Dyröy Guðmundsson frá Efri-
Rauðalæk stoltur með fallegan platta
frá Gunnhildi Art og Guðni Jensson í
Teigi hugsi með sína gimbur í 2. sæti.
Kolbrá Lóa Ágústsdóttir tók við glæsi-
legum nýjum farandgrip fyrir bestu
fimm vetra ána samkvæmt kynbóta-
mati RML. Þær eru báðar frá Vestra-
Fíflholti í Landeyjum.
Dagur sauðkindarinnar
Nokkrar geitur komu á sýninguna
og til gamans var ákveðið að
setja ómtækið á hryggvöðvann á
hafurskiði. Hryggvöðvinn á honum
mældist 18 mm en til samanburðar
var þykkasti bakvöðvinn 44 mm.
Tómas Jensson í Teigi og Guðjón Helga-
son, faðir Hönnu Valdísar á Sólvöllum,
með efstu kollóttu hrútana.
Viðar Steinarsson á Kaldbak kampa-
kátur með verðlaunin fyrir besta
hyrnda hrútinn.
Litfegursta lambið er valið af áhorf-
endum og að þessu sinni var gimbur
frá Núpi fyrir valinu. Ungu bændurnir,
Erla Rún og Fríða Rós, tóku á móti
verðlaununum í öruggri fylgd pabba
síns, Bjarka Guðmundssonar.
Systkinin Anna Sigríður og Sumarliði Erlendsbörn frá Skarði taka við verð-
launum fyrir besta veturgamla hrút ársins 2022 samkvæmt kynbótamati
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.
Myndir / Aðsendar