Úrval - 01.09.1964, Page 17
LÆKNIR í NÁVIST DAVÐANS
15
æskja dauðans „á sama liátt og
blys, sem lognast út af útbrunn-
ið og þreytt á sjálfu sér“, eins og
Nietzsche orðaði það. í Austur-
löndum hafa milljónir manna
þá lífsspeki, sem kennir þeim
hvernig þeir eiga að deyja þegar
stundin kemur. Þannig kunna
þeir að elska dauðann, alveg á
sama hátt og þeir elska lífið.
Hinn göfugi Rabindranath Ta-
gore sagði eitt sinn: „Það er
sama lifið, sem i fögnuði ryður
sér leið upp úr ryki jarðarinnar
í óteljandi blöðum grasanna og
brýst út i áköfum bylgjum lauf-
skrúðs og blóma. Það er sama
lífið, sem vagga hafsins vaggar
í fæðingu og dauða, með flóði
og fjöru. Og þar sem ég elska
þetta lif, veit ég að mér ber að
elska dauðann einnig.“
Til þess að öðlast þessa heim-
spekilegu afstöðu, verðum vér
að leggja rækt við þá hugmynd,
að deyja með vizku og tign, eins
og hæfir göfugum endi á göf-
ugu lífi. Alveg eins og myntin
nær sinu fulla gildi þegar henni
er eytt, þannig nær lifið sinu
æðsta gildi, þegar vér höfum
lært, hvernig vér eigum að láta
það af hendi með yndisþokka
þegar stundin kemur.
»«
VÉLFUGLAHRÆÐUR
Hin hefðbundna fuglahræða, sem margir garðeigendur setja
upp í görðum sínum upp á von og óvon, gerir oft harla litið gagn.
Það má segja, að þarna birtist öllu fremur einhver viðleitni held-
ur en raunveruleg vörn gegn garðþjófum loftsins. Rannsóknar-
stofur Shell í Egham í Englandi hafa því framleitt sjálfvirka
fuglahræðu, sem gefur frá sér skothljóð öðru hverju, heilmikið
„bang“, og hristir snúrur, sem á eru festar málmþynnur. Nú er
verið að gera tilraunir með enn nýja tegund af vélfuglahræðum.
Hún hefur að geyma lítinn bensíngeymi og sívalning, sem spýtir
frá sér loga. Bensínblandan rennur eftir plastslöngu að sivaln-
ingi þessum, og hann spýtr þessum loga frá sér með heljarmikl-
um hvelli.
Augnskurðlækni einum hefur tekizt að ná hornhimnu af augum
kanina, frysta himnurnar síðan og mala þær og nota síðan til
þess að ráða bætur á sjóngöllum. Ef til vill mun þessi aðferð
leysa „kontakt“-sjónglerin af hólmi í framtíðinni.
Looking A'bead