Úrval - 01.09.1964, Qupperneq 19
NÁTTÚRUAUÐÆFI ÍSLANDS
17
])ar með öðlazt full umráð yfir
])ýðingarmestu hafsvæðunum við
ísland, ])ar sem er að finna upp-
eidisstöðvar nytjafiskanna og
þýðingarmestu hrygningarsvæð-
in. Útfærsla þessi var fyrst og
fremst gerð til þess að vernda
fiskistofnana fyrir ofveiði, en
að nauðsyn slíkrar verndunar
höfðu verið vísindaleg rök. Yar
])að sem kunnugt er dr. Árni
Friðriksson, sem hafði forustuna
um öflun þeirra raka, en þau
hyggðust á margra ára rann-
sóknum, hæði hans og annarra
vísindamanna. Sést hér greini-
lega, hversu mikilvægt það er. að
hafa vísindaleffar niðurstöður
máli sínu til stuðnings.
Það er nú undir íslendingum
sjálfum komið, hvernig til tekst
með varðveizlu og nýtingu fiski-
miðanna við fsland. Það verður
fvlpzt með því af öðrum þjóðum,
hvernig oss fer þetta úr hendi,
og þær kröfur verða til vor
gerðar, að hér verði vísindaleg
sjónarmið ráðandi. Vér verðum
að leggja vísindalegan grund-
völl að fiskveiðum vorum og
fiskverkun. Vér verðum að efla
rannsóknir i haffræði og fiski-
fræði. og vér verðum líka að
auka þær rannsóknir, sem lúta
að hagnýtingu aflans. Fiskur,
sem látinn er eyðileggjast, er
hetur óveiddur.
Hér á íslandi þarf að efla
hvor tveggja, vísindalegar grund-
vallarrannsóknir í náttúrufræði,
bæði á landi og sjó, og vísinda-
legar rannsóknir og tilraunir í
þágu atvinnuveganna. Þetta er
nú sem betur fer að verða ís-
lendingum Ijóst. Þeirn er farið
að skiljast, að þeir eru of stutt
komnir á sviði raunvísinda. Það
verður að sjálfsögðu ekki ætlazt
til þess af íslendingum, að þeir
leggi nokkuð að ráði til grund-
vallarrannsókna í eðlisfræði,
efnafræði eða líffræði. Slik verk-
efni eru aðeins fyrir stórar og
auðugar þjóðir. En aftur á móti
ber fslendingum að annast sjálf-
ir náttúrufræðilegar rannsóknir
á sínu eigin landi, gróðri þess
og dýralífi. Þarna er mikið verk
óunnið og það þarf að vinnast
sem fyrst. Það er undirstaða
þess að náttúruauðlindir íslands
verði hagnýttar og verndaðar
á réttan hátt. Ennþá hafa t. d.
sáralitlar rannsóknir verið gerð-
ar á lægri jurtum og lægri dýr-
um á íslandi og í hafinu um-
hverfis ísland. Að þessu leyti
þekkjum vér ekki ennþá vort
eigið land og landhelgi.
Svo að lesendur Náttúrufræð-
ingsins geti áttað sig á þvi,
hversu íslenzka fiskveiðilög-
sagan, öðru nafni íslenzka land-
helgin, er stór, birtist hér upp-
dráttur af íslandi ásamt land-
grunninu. A uppdrættinum eru