Úrval - 01.09.1964, Qupperneq 142
140
ÚRVAL
1910, höfðu Japanir lagt undir
sig Iíóreu með valdi og innlim-
að þessa 17 milljóna þjóð i jap-
anska ríkið. Kóreubúar höfðu
aldrei sætt sig við missi sjálf-
stæðis síns, og því höfðu skipti
þjóðernanna einkennzt af tor-
tryggni. Að vísu bjuggu Kóreu-
búar i fátækrahverfum allra
stærri borga Japan, en þessir
innflytjendur héldu hópinn og
mættu alls staðar tortryggni Jap-
ana.
Skömmu eftir upphaf jarð-
skjálftanna tók ljótur orðrómur
að breiðast út um Tokyo með
leifturhraða. Á hverju götuhorni
mátti heyra sögur af ránum og
morðum Kóreubúa, og jafnvel
var sagt, að þeir væru að mynda
lier, sem ætti að ráðast inn í
Tokyo. Þessi siðasta ákæra gegn
Kóreubúum var að vísu fáránleg,
en henni var samt yfirleitt trú-
að, og varðflokkarnir tóku að
voopnast gömlum samuraisverð-
um, bambusspjótum, bareflum
og hnífum. Þeir tóku sér stöðu
á þýðingarmiklum gatnamótum
og hlóðu hindranir, til þess að
þeim mætti betur takast að hafa
upp á Kóreubúum, er um stræt-
in færu.
Líkamlega séð er enginn mun-
ur á Iíóreubúum og Japönum. I
viðleitni sinni til þess að finna
Kóreubúa gripu varðflokkarnir
því til þess ráðs að biðja fólk,
sem þeir grunuðu um að vera
Kóreubúa, að rnæla af munni
fram hinn almenna japanska
samstöfulista: ,,ba, bi, bu, be,
bo.“ Það var alveg óhætt að
gera ráð fyrir því, að Kóreu-
búarnir bæru b fram sem p, og
þeir, sem það gerðu, voru stungn-
ir, höggnir eða barðir i hel.
Enginn veit, hversu margir
hjálparvana Kóreubúar voru
drepnit- fyrstu tvo jarðskjálfta-
dagana. Það er jafnvel erfitt að
gizka á það. Kóreubúar segja,
að 6000 manns hafi verið drepn,
ir, en japanska stjórnin viður-
kennir, að varðflokkarnir kunni
að hafa drepið 500 manns, en
það hafi ekki allt verið Kóreu-
búar. En hin raunverulega tala
er kannske ekki eins þýðingar-
mikil þrátt fyrir allt og hinar
endanlegu afleiðingar þessara
drápa. Þótt Yamamoto gengi
strax fram í því að liafa liemil
á varðflokkunum, voru Kóreu-
búar almennt sannfærðir um,
að japanska stjórnin hefði ekki
litið þessi illvirki alvarlegum
augum, heldur fyrirgefið hinum
seku. Og þessi sannfæring þeirra
hefur orðið til þess að eitra
samskipti þjóða þessara æ sið-
an.
SNÚIÐ AFTUR TIL LÍFSINS
Hin smánarlegu fjöldamorð á
Kóreubúum voru framin af til-