Úrval - 01.06.1965, Side 12

Úrval - 01.06.1965, Side 12
10 ÚRVAL ViS þetta bætist svo, að margt ungt fólk er undir þungu fargi í skólum á vorum dögum. Samkeppn- in um góðar einkunnir og aðgang að æðri skólum hefur aldrei verið eins hörð. Þroskaárin eru sá timi, þegar i svo mörgum efnum verður að fara fram val, sem mun hafa á- hrif á allan æviferil manna. Þau eru einnig sá tími þegar börnin taka að sjá foreldra sína i eins konar fjarvídd, þegar hinar goðum- líku hugmyndir um móður og föður taka að blikna og í staðinn fer að örla á vitundinni um ófullkomnar mannlegar verur. Er þá ekki að undra þótt hjá mörgum unglingn- um komi í ljós merki um innri þenslu, og engin furða þótt margur gerist óstýrilátur undir áhrifum áfengis. Læknar segja, að á surnu full- orðnu fólki hvili eitthvert slikt farg, að það ætti aldrei að drekka áfengi sökum þess, að það kann þá engin ráð til að hætta. Ungling- um er að vissu leyti svipað farið og þessu fólki. Ef þeir fresta til- raunum sínum með áfengi þar til þeir eru orðnir eldri og þroskaðri, hafa þeir miklu meiri likur til að geta komizt hjá hættulegum atvik- um. Þá munu þeir geta notið á- nægjunnar af hóflegri áfengis- nautn — andlegrar hvíldar og sam- kvæmishæfni — án allra spillandi öfga. Hinum ýmsu foreldrum mun þykja nauðsynlegt að rökræða áfengis- málið við börn sín á ýmsa vegu. Hið rétta orð í þessu sambandi er að rökræða, ekki að fyrirskipa eða láta afskiptalaust. Foreldrum, scm eru i algeru bindindi' kann að þykja full auðvelt að segja: „Gerið eins og við.“ Þeir ættu jafnframt að útskýra, hvað þeir vilji forðast, með tilliti til eðlilegrar forvitni barnsins um alla skapaða hluti, þar á meðal áfengi. Þeir sem þjóra mikið og geta ekki bjargað sjálfum sér, skyldu ekki halda, að þeir geti leynt því, hvernig komið er fyrir þeim, fyrir börnum sínum. Lækn- ar segja, að í fjölskyldum, sem of- drykkju kemur fyrir í, sá ástæðu- laust að forðast það á nokkurn hátt að ræða þennan sjúkdóm hreinskilnislega við börnin á ungl- ingsaldri. Þeir unglingar, sem drckka gegn vilja foreldra sinna, kunna að búa yfir einhverjum vandamálum, sem rétt væri að ræða um við prest eða lækni, ef unglingarnir fást ekki til að ræða það við foreldrana, og þagna þrjózkulega i hvert sinn, sem foreldrarnir nálgast það um- ræðuefni. Það er hið erfiða hlut- verk foreldranna að færa sönnur á, að þeir séu ávallt barnanna meg- in i baráttunni fyrir gæfu og hug- arrósemi, ásamt góðri hegðun. Ef það tekst, að viðhalda hlýlegu og frjálslegu sambandi milli for- eldra og barna, eru allar líkur til, að vandamálið að halda heimboð fyrir unglinga án áfengis, reynist furðulega auðvelt. Eitt þeirra ein- kenna, sem gerir unglingsaldurinn svo aðlaðandi og elskulegan, er sannleiksást unglinganna og fyrir- litning þeirra á allri hræsni og skynhelgi. Sá faðir, sem útlistar greinilega fyrir unglingunum, hve hættulegt áfengið er þeim, og sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.