Úrval - 01.06.1965, Qupperneq 80

Úrval - 01.06.1965, Qupperneq 80
78 ÚRVAL II. Guðmundur í Múla kom oft að Fellsmúla, enda skammt á milli bæja, Múla og Fellsmúla. FaSir minn, sé'ra Ófeigur, og hann, höfSu að sjálfsögðu margt saman að sælda, þar sem báðir voru í sókn- arnefnd og hreppsnefnd. Mjög voru þeir ólíkir um inargt, enda l'jarri þvi að vera alltaf skoðana- bræður, og átti það sérstaklega við um trúmál og stjórnmál. En vegna þess, að báðir voru skapstillingar- menn og kunnu sér hóf um mál- flutning allan, fór oftast vel á með þeiin og aldrei illa. —. Faðir minn var geymisstefnumaður (íhalds- maður) í stjórnmálum, en Guð- mundur taldi sig Framsóknarmann. Samt var hann eiginleg'a í eðli sínu „ihaldsmaður“, — geyminn á göm- ul verðmæti, fylgispakur „fornum dyggðum“, kunni vel að meta öll þjóðleg fræði, og var gætni honum mjög í blóð borinn, en þar er ein- mitt um að ræða eitt aðaleinkenni, ef ekki kjarna, allar geymistefnu (,,íhalds“). — Heimili Guðmundar í Múla var frábært um alla snyrti- mennsku, bæði innanhúss og utan, og bæði voru þau hjón, Guðmundur og Bjarnrún, gestglöð og veitul, enda komu margir að Múla, og munu erindi ekki alltaf hafa ver- ið mjög brýn. Guðmundur kom sér upp mjög snotrum trjágarði i brekku fyrir ofan bæ sinn, og er oft unaðslegt þar um að litast, ekki síst á fögrum kvöldum, þegar sól er að síga i vestri, en bærinn i Múla horfir gegnt þeirri átt. Stendur hann undir Skarðsfjalli suðvestanverðu, og eru næstu bæir vestan fjallsins Hellar og Hvammur. Fagurt er og friðsælt á þessum slóðum og mæt- ast þarna heiðatöfrar, yndisþokki gróðurs og grænna túna, og þagn- aróður auðna, hrauns og sanda. III. Ég hef kallað Guðmund í Múla heimspeking og' búhöld og held ég, að hvorttveggja hitti i mark. Búhöldur var hann góður, þvi að ráðdeildarsamur var hann i bezta lagi, hagsýnn og hófsmaður um alla liluti. Búnaðist honum vel og mun hann hafa verið einn af allra efnuðustu bændum i Lands- sveit hin síðustu ár. En honum nægði ekki búskapurinn og bú- liyggjan. Hann þráði skilning á leyndardómum lífsins, en fann ekki þann skilning i hinum hefðbundna kristindómi, — og gat því ekki geng'ið lionum á hönd af öllu hjarta eða heilum hug. Þegar hann 'kynnt- ist hinum gáfulegu kenningum Guðspekinnar, fann hann þar svör við mörgum áleitnum spurningum, sem sótt höfðu á huga hans. Eins og áður var sagt, kom Guðmundur oft að Fellsmúla, og var hann þar alltaf aufúsugestur. Man ég vel, að ég fagnaði ævinlega komu hans, og þegar hann var kominn inn og búinn að kveikja í pípu sinni, fannst mér einhver hátið gengin í garð. Hófust þá venjulega fjörugar samræðui' um trúmál og dulræn efni. Fór þá oftast svo að þrír voru á móti einum: Þessir þrir voru sá, sem þessar línur ritar, séra Ragn- ar, bróðir minn, sem aðhylltist ineginkenningar guðspekinnar, og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.