Úrval - 01.06.1965, Side 94
92
ÚRVAL
fræða i des. 1963 (enn óprentað-
ur). Það, sem hér fer á eftir er
orðrétt haft eftir Ólafi Halldórs-
syni: „Skarðsbók -— ÁM 350 fol.
— og Codex Scardensis •— postula-
sagnahandritið stóra — eru skrifuð
á sama stað. Til þess bendir, að
sama liönd og er á Skarðsbók, er
á fyrri hluta ÁM 233a fol., en sama
hönd og er á síðari hluta 233a er
á fyrsta hluta Cod. Scard. Ennfrem-
ur þetta: í Cod. Scard. er meðal
annars Tveggja postula saga Jóns
og Jakobs, skrifuð með hendi I,
sem D. Slay kallar; með sömu hendi
og eftir sama fornrit er þessi saga
skrifuð í ÁM 653a 4to, en fornrit-
ið er ÁM 239 fol., og þar er Tveggja
Postula saga skrifuð af sama manni
og Skarðsbók. Hér bætast og við
likindareinkenndari röksemdir, svo
sem skyldleiki í stafsetningu og
stafagerð.“ Ólafur Halldórsson
komst einnig að þeirri merkilegu
niðurstöðu, að handritin ÁM 350
fol., Cod. Scard., ÁM 233a fol.,
ÁM 653a 4to og ÁM 239 fol., hafi öll
verið skrifuð í klaustrinu að Helga-
felli. Helgafellsklaustur var ekki
langt frá Skarði, og styrkir þetta
enn meir þá tilgátu, að Ormur
Snorrason hafi látið gera Skarðs-
bók.
Ég hef komizt að þeirri niður-
stöðu við rannsóknir á lýsingu
Skarðsbókar, ÁM 233a fol., Biskupa-
sögunum í Stokkhólmi Perg 5 fol.,
ÁM 226 fol., Codex Scardensis og
fleiri handrita, að þau muni senni-
lega öll lýst á sama stað og sum
þeirra jafnvel af sama manni. Verð-
ur það ekki rökstutt frekar i þess-
ari grein. Teiknibókin i Árnasafni,
nr. 673a 4to, er einnig ein af þeim
bókum, sem ég álít, að lýst hafi
verið á þessum sama stað. Er margt
mjög likt með henni og öðrum
handritum þessa skóla, þar á með-
al Skarðsbók, og sumt alveg eins.
Teiknibókin liefur verið eins kon-
ar forskriftarbók, og hefur verið
safnað í hanna fyrirmyndum og
munstrum, sumum mjög gömlum.
Er trúlegt, að fleiri slíkar bækur
hafi verið til og upp i þær tekið
það, sem þótti vert að geyma og
hafa til fyrirmyndar.
Teiknibókina nefni ég hér vegna
þess, að i henni eru tvær fyrir-
myndir, sem líkjast gjöfurum. Á
fol. 21v krýpur krúnurakaður mað-
ur klæddur fóðraðri skikkju, og
réttir fram lokaða bók, og á fol.
11 v krýpur einnig krúnurakaður
maður í svipaðri skikkju og réttir
fram opna bók. Báðar þessar mynd-
ir gætu verið forskriftir að gjöfur-
um, þó að „gjafararnir“ hér séu
klæddir sem -munkar eða prestar.
Það er mjög algengt i handritalýs-
ingum miðalda í Evrópu, að skrifar.
inn eða maðurinn, sem samdi,
þýddi eða lýsti bókina, rétti hana
fram til guðlegrar veru eða kon-
ungborinnar persónu, en er senni-
lega sjaldnast hinn eiginlegi gjafari.
Má taka sem dæmi myndina af
skrifaranum Herbert Dursens, þar
sem hann réttir postulunum Pétri
og Páli bókina Commentaire des
Psaumes eftir Gilbert de la Porrée
frá 12. öld. Munlturinn stendur fyrir
utan rými hinna helgu manna og
er sýndur miklu minni en þeir.
Annað dæmi mætti taka af Pliníusi
eldra, þar sem hann réttir Titusi