Úrval - 01.06.1965, Síða 94

Úrval - 01.06.1965, Síða 94
92 ÚRVAL fræða i des. 1963 (enn óprentað- ur). Það, sem hér fer á eftir er orðrétt haft eftir Ólafi Halldórs- syni: „Skarðsbók -— ÁM 350 fol. — og Codex Scardensis •— postula- sagnahandritið stóra — eru skrifuð á sama stað. Til þess bendir, að sama liönd og er á Skarðsbók, er á fyrri hluta ÁM 233a fol., en sama hönd og er á síðari hluta 233a er á fyrsta hluta Cod. Scard. Ennfrem- ur þetta: í Cod. Scard. er meðal annars Tveggja postula saga Jóns og Jakobs, skrifuð með hendi I, sem D. Slay kallar; með sömu hendi og eftir sama fornrit er þessi saga skrifuð í ÁM 653a 4to, en fornrit- ið er ÁM 239 fol., og þar er Tveggja Postula saga skrifuð af sama manni og Skarðsbók. Hér bætast og við likindareinkenndari röksemdir, svo sem skyldleiki í stafsetningu og stafagerð.“ Ólafur Halldórsson komst einnig að þeirri merkilegu niðurstöðu, að handritin ÁM 350 fol., Cod. Scard., ÁM 233a fol., ÁM 653a 4to og ÁM 239 fol., hafi öll verið skrifuð í klaustrinu að Helga- felli. Helgafellsklaustur var ekki langt frá Skarði, og styrkir þetta enn meir þá tilgátu, að Ormur Snorrason hafi látið gera Skarðs- bók. Ég hef komizt að þeirri niður- stöðu við rannsóknir á lýsingu Skarðsbókar, ÁM 233a fol., Biskupa- sögunum í Stokkhólmi Perg 5 fol., ÁM 226 fol., Codex Scardensis og fleiri handrita, að þau muni senni- lega öll lýst á sama stað og sum þeirra jafnvel af sama manni. Verð- ur það ekki rökstutt frekar i þess- ari grein. Teiknibókin i Árnasafni, nr. 673a 4to, er einnig ein af þeim bókum, sem ég álít, að lýst hafi verið á þessum sama stað. Er margt mjög likt með henni og öðrum handritum þessa skóla, þar á með- al Skarðsbók, og sumt alveg eins. Teiknibókin liefur verið eins kon- ar forskriftarbók, og hefur verið safnað í hanna fyrirmyndum og munstrum, sumum mjög gömlum. Er trúlegt, að fleiri slíkar bækur hafi verið til og upp i þær tekið það, sem þótti vert að geyma og hafa til fyrirmyndar. Teiknibókina nefni ég hér vegna þess, að i henni eru tvær fyrir- myndir, sem líkjast gjöfurum. Á fol. 21v krýpur krúnurakaður mað- ur klæddur fóðraðri skikkju, og réttir fram lokaða bók, og á fol. 11 v krýpur einnig krúnurakaður maður í svipaðri skikkju og réttir fram opna bók. Báðar þessar mynd- ir gætu verið forskriftir að gjöfur- um, þó að „gjafararnir“ hér séu klæddir sem -munkar eða prestar. Það er mjög algengt i handritalýs- ingum miðalda í Evrópu, að skrifar. inn eða maðurinn, sem samdi, þýddi eða lýsti bókina, rétti hana fram til guðlegrar veru eða kon- ungborinnar persónu, en er senni- lega sjaldnast hinn eiginlegi gjafari. Má taka sem dæmi myndina af skrifaranum Herbert Dursens, þar sem hann réttir postulunum Pétri og Páli bókina Commentaire des Psaumes eftir Gilbert de la Porrée frá 12. öld. Munlturinn stendur fyrir utan rými hinna helgu manna og er sýndur miklu minni en þeir. Annað dæmi mætti taka af Pliníusi eldra, þar sem hann réttir Titusi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.