Úrval - 01.10.1966, Blaðsíða 10
8
Allar þessar framkvæmdir hafa
kostað geysimikið fé, eins og gef-
ur að skilja, Sander hefur eytt næst-
um öllum launum sínum í þessu
skyni, tekið lán út á lífsábyrgðina
sína, selt allar aðrar eignir sínar.
Yfir honum vofði fjárhagshrun ár-
ið 1961, en honum tókst að bjarga
málunum við eftir mikla orrustu við
yfirvöldin.
Sander var opinber embættis-
maður og því höfðu stjórnarvöldin
lengi vel haldið því fram, að hann
mætti ekki taka gjald af fólki fyrir
að leyfa því að skoða garðinn. En
nú létu þau loksins undan þrábeiðni
hans, er þau gerðu sér grein fyrir
því, hvílíkt aðdráttarafl Munda
Wanga hafði nú orðið fyrir ferða-
menn. Honum var leyft að krefj-
ast tveggja og hálfs shillings gjalds
af fullorðnum og hálfs annars
shillings gjalds af börnum. f fyrstu
var að vísu ekki um miklar fjár-
hæðir að ræða fyrir garðinn, en
þessi ráðstöfun tryggði framtíð
ÚRVAL
hans, sem varð nú sífellt bjartari
er tímar liðu fram.
Þegar kom fram á árið 1964, voru
aðstoðarmenn Sanders orðnir níu,
og þá hafði hann einnig bætt við
fimm vatnaliljutjörnum, átta nýjum
gosbrunnum, tveim fossum og ótal
laufskálum, þar sem voru fínleg
lítil borð og stólar úr smíðajárni.
Garðsvæðið hafði upprunalega náð
yfir 5 ekrur, en garðurinn hafði
smám saman verið stækkaður,
þangað til hann náði nú yfir sam-
tals 40 ekrur. Hann hafði byrjað
með 4 villt fíkjutré, en nú höfðu
bætzt í hópinn um 50.000 tré, runn-
ar, vafningsviðir og jurtir, yfirgrips-
mesta safn jurta og trjáa í gervallri
Afríku. Til safns þessa teljast um
202 tegundir trjáa, 30 tegundir
brönugrasa og 51 tegund af alls
konar vafningsviði auk urmuls af
vatnajurtum, grasafbrigðum, rós-
um og alls konar runnum og jurt-
um.
Gestir skoða vatnaliljur í gos-
brunni í Chilanga.