Úrval - 01.10.1966, Blaðsíða 58
Meðferð lifandi máls
Eftir Ævar R. Kvaran.
Ókunnugum manni, sem
kæmi til Englands og
spyrði þarlendan mann,
hvar heyra mætti feg-
urst talaða enska tungu,
myndi sennilega ráðlagt að gera
eitt af þrennu: fara í kirkju og hlýða
á predikun, bregða sér í leikhús eða
hlusta á þuli eða fyrirlesara brezka
útvarpsins.
Sá, sem hefur sæmilega kunnáttu
í enskri tungu, getur á augabragði
heyrt á máli Englendings, hvort
hann hafi hlotið skólamenntun eða
ekki. Framburður málsins segir til
um það. Þetta stafar vitanlega af
því, að hver menntaður maður ber
svo mikla virðingu fyrir móðurmáli
sínu, að hann leggur rækt við fram-
burð þess, enda yrði hann sér fljót-
lega til athlægis ella. Þetta finnst
hverjum Englendingi svo sjálfsagt,
að honum kemur ekki í hug að ræða
það. Sjálfsagður skilningur á þessu
ríkir vitanlega einnig hjá stjóm
kennslumála og kennarastéttinni;
enda finnst sá menntaskóli ekki í
öllu landinu, þar sem framsögn er
ekki tekin alvarlega sem sjálfsagð-
ur hluti af námi nemenda. Þetta
gildir vitanlega um allar þjóðir, sem
kenna sig við menningu.
Erlendum vini íslenzkrar menn-
ingar brygði alvarlega í brún og
ætti vafalaust erfitt með að trúa
því, væri honum sagt, að fagur
framburður íslenzkrar tungu væri
ekki kenndur í einum einasta skóla
íslands; að þar væri einungis lögð
áherzla á ritað mál.
Það er engu líkara en við íslend-
ingar höldum, að íslenzk tunga sé
einungis ritmálið. En eins og orðið
„tunga“ ber með sér er vitanlega
ekki síður átt við talað mál en rit-
að.
Við eigum ágæta málfræðinga og
málvísindamenn, sem hafa ritað
talsvert um íslenzku frá ýmsum
sjónarmiðum; en næstum allt er það
helgað rituðu máli. í skólum eru rétti-
lega gerðar til okkar strangar kröf-
ur um kunnáttu í íslenzkri málfræði,
bragfræði, setningafræði o.s.frv., og
■ er vitanlega ekki annað en gott um
það að segja.
Ég hef gengið hina venjulegu
menntabraut gegnum barnaskóla,
menntaskóla og háskóla, en aldrei
minnist ég þess þó að hafa orðið
var við, að íslenzkukennari skipti
sér af framburði nemenda á máli
þjóðarinnar. fslenzk skáld hafa í
fögrum Ijóðum vegsamað móður-
56
Eimreiðin