Úrval - 01.10.1969, Side 6

Úrval - 01.10.1969, Side 6
4 ÚRVAL #*- -*5k smasogur ,um . stormenm -ifeJjí MARGAR SKOPSOGUR eru sagðar úr Menntaskólanum í Reykjavík og hér er ein af því taginu. Það bar til í gamla Latínuskólanum, að kennari nokkur kærði nemanda sinn fyrir rektor og sakaði hann um að hafa reitt að sér göngustaf. Rektor skyldaði piltinn til að biðja kennar- ann velvirðingar á framferði sínu, hvað hann og gerði með þessum orð- um: — Ég bið yður, herra kennari, að fyrirgefa mér það, að ég reiddi að yður stafprik, en barði yður ekki! GEIMFARAR eru hetjur okkar tíma og þar af leiðandi mest í sviðs- ljósinu. Það er því vel viðeigandi að segja sögu af einum slíkum. Þegar William Anders, sem var í geimfarinu Apollo 8, kom heim, lét hann þess getið, að maður, sem hefði ferðast hálfa milljón mílna leið umhverfis tunglið, þyrfti á hvíld að halda til að jafna sig og reyna að fóta sig aftur á jörðinni. í þessu skyni fór hann ásamt konu sinni á fáfarinn sumardvalarstað í Mexico. — Við lágum á svölunum, sem fylgdu hótelherbergi okkar og nut- um lífsins í fyllsta máta, segir And- ers. — Þá var allt í einu barið að dyrum. Stórvaxinn náungi birtist í dyrunum og var með ljósmyndavél á brjóstinu. Ég hugsaði með mér: — Og hér líka! Fjandinn hafi það, það er hvergi frið.ur fyrir þessum ljósmyndurum, hvert sem maður fer. Maðurinn spurði, hvort hann mætti taka mynd. Ég stillti mig og bauð honum innfyrir. Þá gerði hann sér lítið fyrir, ýtti mér til hliðar, gekk út á svalirnar, tók að hand- leika myndavélina sína og sagði: — Þakka yður kærlega fyrir! Hér er nefnilega betra útsýni yfir fló- ann en nokkurs staðar annars stað- ar hér á hótelinu. FRÁ GEIMFERÐ- UM nútímans bregðum við okk- ur aftur í tímann og staðnæmumst við innanlands- pólitíkina fyrir nokkrum áratug- um. Eitt sinn voru þeir Jónas Jonsson frá Hriflu, fyrr- um forsætisráðherra, og séra Sig- urður Einarsson í Holti, saman í fjárveitinganefnd Alþingis. Mikið hafði verið að gera í nefndinni og vel unnið að vanda. Þegar leið að þingslitum, kom Jónas að máli við Sigurð og sagði: — Nú ætla ég til Þingvalla til að hvíla mig og taka með mér góða bók, Sjálfstætt fólk eftir Kiljan. Nokkrum dögum síðar hringdi síminn hjá Sigurðu Einarssyni: — Ö-hö! Það er Jónas Jónsson. Ég er nú kominn heim og búinn að lesa bókina.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.