Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 9
7
getur geislað hita yfir
töluvert loftbil, til kalds
yfirborð svo sem
gluggarúðu.
Herbergi með stórum
gluggum getur verið vel
upphitað, en þó fundizt
svalt, ef yfirborð glugg-
anna er kalt. Þegar svo
stendur á, er oft kvart-
að um kaldan dragsúg.
Fötin eru langþýðing-
armesta vörnin gegn
kulda. Þau einangra lík-
amann vegna loftsins,
sem er í efninu og á
milli efnislaga. Mis-
munandi hitaeinangrun,
heldur í hæfninni til, að
draga í sig vatn og mót-
stöðu efnistrefjanna
gegn samþjöppun.
Því er enn almennt
trúað, að hiti og þungi
fari saman: að þung
ábreiða sé hlýrri en létt.
Ekkert er fjær sanni.
Æðardúnn er léttur
en hlýr, af því að hann
heldur í sér miklu lofti
í hlutfalli við þunga
sinn. Settu verulega
þunga ábreiðu ofan á
dúnsæng og hlýjan
verður minni en af
sænginni einni saman.
Sama á við um föt,
hvort heldur þau eru
ætluð til vetrarklæðn-
aðar hér á landi eða til
heimskautaferða. Þau
síðarnefndu verða auð-
vitað að einangra betur
og útlitið hefur minna
að segja. Innsta fatið,
prjónavestið, lítur ekki
út fyrir að gera mikið
gagn gegn kulda.
Það er gert úr grófu
garni, riðað eins og
fiskinet, sem sagt, tóm
göt fest saman með
spotta. En það eru götin,
sem gera mest gagn, því
þau mynda eins konar
loftbólur, þegar skvrtu
er kiæðzt utanyfir vest-
inu. Loftið kemst ekki
svo auðveldlega burt og
einangrar þess vegna
yfirborð líkamans.
Nokkrar flíkur koma
ut.anyfir garnvestið, eft-
ir því hve kalt er. Yzta
flíkin getur verið dún-
fóðruð úlpa, eða loð-
fóðruð úlpa, loftþétt úr
afar fastofnu efni. Þetta
einangrar ekki þannig,
að hitinn hald:st inni,
heldur helzt vindurinn
úti. Þetta er afar mikil-
vægt í köldu veðri.
Hitatap fer aðallega
fram með útleiðslu, og
ef heita loftinu um-
hverfis líkamann er
blásið burt, eykst hita-
tapið. Og það hefur
mikla þýðingu fyr'r
hlýju fatanna.
Maður heyrir fólk oft
segia um veðrið: „Það
er fallegt veður, en það
er kaldur næðingur“. I
raun og veru gerir vind-
urinn veðrið ekki kald-
ara, en hann stuðlar að
því, að blása hitanum
frá líkamanum miklu
fljótar — svo manni
finnst kalt.
Hversu mikið á að
klæðast, fer ekki ein-
göngu eftir hitastiginu
og vindinum, heldur
einnig hitaframleiðslu
líkamans. Hún breytist
í réttu hlutfalli við
vöðvastarfsemi. Þegar
maður liggur hreyfing-
arlaus í rúminu, er hita-
framleiðslan í lágmarki.
Þegar maður hleypur
spretthlaup af öllum
mætti, getur hitafram-
leiðslan orðið tuttugu
sinnum meiri.
Fatnaður, sem þér
finnst þægilegur, er þú
situr kyrr, verður alltof
heitur ef þú ferð að
stinga upp garðinn. Svo
þú verður að vera við-
búinn að breyta klæðn-
aðinum eftir því, hvað
þú aðhefst, ella þola ó-
þægindi. Á heimskauta-
klæðnaði eru bönd til
að losa um ytri fötin,
svo hægt sé að hleypa
út heitu lofti, þegar
þörf gerist.
Þess ber að minnast,
að ungbörn eru mjög
misjafnlega athafnasöm.
Barn, sem sparkar í
vögguna, framleiðir
mikinn hita, og því gef-