Úrval - 01.10.1969, Síða 19

Úrval - 01.10.1969, Síða 19
BOURGUIBA: WASHINGTON NORÐUR-AFRIKU 17 gegn sjálfum kjarna Múhameðstrú- arinnar. Strangtrúarmenn og sam- tök þeirra mótmæltu þessu ákaf- lega, en Bourguiba tókst að sann- færa þjóð sína um að henni gæti ekki miðað áfram á framfarabraut neitt að ráði ef hún ríghéldi sér í þjóðfélagskerfi, sem gerði það að verkum, að hálf þjóðin, þ.e. kon- urnar, væri í rauninni óvirk þjóð- félagslega. Margar konur í Túnis bera enn „safsari“, þ.e. hvíta blæju, þannig að það sést ekki í andlit þeirra, að augunum undanskildum. Bourguiba lætur ekkert tækifæri ónotað til að hæðast að þessari venju. Hann kallar stundum til einhverrar stúlku í mannþrönginni: „Svona, svona, þér eruð lagleg. Hví skylduð þér reyna að fela yður? Takið af yður þessa blæjudruslu!" Stúlkan hlær þá vandræðalega, en sviptir svo burt blæjunni. Og að öllum líkind- um setur hún hana aldrei upp fram- ar. Bourguiba hefur þannig jafnt og þétt reynt að afnema aðrar þær venjur Múhameðstrúarmanna, sem hann álítur að tefji nauðsynlegar framfarir, þótt hann hafi reyndar ekki farið sér mjög geyst í því efni. Sem dæmi mætti taka þá venju að fasta allan tunglmánuðinn „Rama- dan“. „Ramadan skal ei lengur lama allt þjóðfélagið í heilan mánuð ár hvert,“ sagði hann. Og til þess að sanna að honum væri alvara þamb- aði hann appelsínusafa úr stóru glasi á opinberum hádegisfundi í „Ramadanmánuði“ nýlega og gætti þess, að þetta væri vel auglýst. Og hann skipaði veitingamönnum að hafa veitingahúsin opin allan dag- inn. Þetta fordæmi varð mörgum Tú|nisbúum hvatning til þess að hætta föstum fyrir fullt og allt. Það ríkir engin lognmolla í ráðu- neytunum í Túnis. Þar ríkir líf og fjör. Bourguiba hefur tekizt að skipuleggja sérstaklega heiðarlega og hæfa opinbera þjónustu. Og hann gætir þess, að opinberir embættis- menn sofi ekki á verðinum með því að hringja í þá án fyrirvara á nóttu jafnt sem degi og biðja þá að gefa skýrslu um framgang ýmissa opin- berra áætlana og framkvæmda. Þeg- ar hann var spurður að því nýlega, hvers vegna það væri lítil sem eng- in opinber spilling í landinu, hróp- aði hann: „Vegna þess að ég er heið- arlegur maður! Ég mun ekki þola slíkt! Það er aðeins hægt að virða það ríki, sem hagar sér á virðingar- verðan hátt.“ Undir stjórn Bourguiba hefur brúttóframleiðslan vaxið um rúm 50% frá 1958, sem er mjög athyglis- vert, einkum þegar tillit er tekið til þess, að landið getur ekki státað af miklum náttúruauðæfum. Landið hefur fengið bandaríska efnahags- aðstoð, sem nemur 570 milljónum dollara, og bandarískir embættis- menn segja, að þeim peningum hafi verið varið skynsamlega. Ýmsum nýjum atvinnugreinum hefur verið komið á fót, en samt hefur verið forðazt að leggja út í framkvæmdir, sem þjóðin hefur hvorki efni á né þörf fyrir, þó glæstar yrðu á yfir- borðinu, heldur hefur aðallega ver- ið fest fjármagn í ýmsum landbún- aðarframkvæmdum í heldur smáum stíl, sem kann ef til vill ekki að gefa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.