Úrval - 01.10.1969, Síða 44

Úrval - 01.10.1969, Síða 44
42 ÚRVAL að þau elski okkur, en flest eiga þau rætur sínar að rekja til dýpstu hvatar barnsins. — ,,En ég? Hvað um mig?“ Barnið verður að vera eigin- gjarnt, því að annars kemst það ekkert áleið s. Það ávinnur sér reynslu og þekkingu og fyllir í eyð- urnar með stöðugri sjálfhyggju. En það er hægt að kenna börnum að gera eitthvað fyrir aðra, sýna nær- gætni og tillitssemi, þó að slíkt sé þeim ekki eðlilegt og þróist ekki af sjálfu sér. VONBRIGÐI NAUÐSYNLEG REYNSLA Hvenær getur barnið sýnt raun- verulega ást? Að mínum dómi ekki fyrr en eft- ir gelgjuskeiðið. Sumir læra seinna en það að elska, og til eru þeir sem aldrei læra það. Uppeldi og per- sónuleikaþroski einstaklingsins ræður úrslitum í því máli. Ef til- finningalíf barns hefur aldrei náð nægum þroska, getur það ekki elsk- að. Og heldur ekki orðið ástfangið? Jú — en að elska og að verða ástfanginn er sitt hvað. Ásthrifni getur orðið að ást, en sá sem er ástfanginn hugsar mest um sjálfan sig og að fá tilfinningar sínar end- urgoldnar. Hvernig er hægt að þroska til- finningalíf barna? Með því að elska þau á þann hátt, að þau læri að beina athygli sinni út á við og andsvara blíðu annarra. Þau þurfa á mikilli blíðu að halda, ást, umhyggiu og nærfærni, en þau þurfa líka að sjá þegar okkur líkar ekki við þau. Það er óumflýjanlegt fyrir þau að læra, að þau geta ekki alltaf fengið allt sem þau óska sér, og vonbrigði eru þeim nauðsynleg reynsla. Við hjálpum börnunum okkar ekki með því að verja þau gegn vonþrigðum og mótlæti. Eiga foreldrar að vera félagar barna sinna? Lítil börn eignast félaga meðal jafnaldra sinna, en foreldrarnir eiga að vera þeim til stuðnings og h'álpar, ves'eiðendur þeirra og uppalendur. Það er gott, að sam- bandið milli foreldra og barna verði smám saman að félagsskap þegar börnin stækka og fara að geta staðið meira á eigin fótum, en ung börn þarfnast festu og styrks frá foreldrum sínum. Er ást foreldra til barna sinna náttúrulögmál? Elska foreldrar börn sín af eðlishvöt? Ást foreldra til barna sinna er sérstakt fyrirbrigði. Já, ég held, að hún megi teljast náttúrulögmál. En á hvern hátt hún er sýnd í verki. er misiafnt. Sumir elska skilyrðis- laust án þess að ætlast til neins, aðrir setja viss takmörk sem ekki má fara yfir. Meðan þörnin eru lítil og ósjálfbjarga, elskum við þau án þess að gera nokkrar kröfur til þeirra, en þegar þau vaxa nn. verðum við smátt og smátt kröfu- harðari þeirra sjálfra vegna. Er hægt að gera of miklar kröf- ur til barna? Oftast held ég, að við gerum of litlar kröfur til þeirra. Börnin þroskast fyrr þegar mikils er kraf- izt af þeim. f velferðarríkjunum halda börnin áfram að vera börn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.