Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 45
BARNIÐ ELSKAR SJÁLFT SIG
43
miklu lengur en í svokölluðum van-
þróuðum löndum, þau ganga leng-
ur í skóla og eru lengur vernduð
gegn umheiminum. En allir verða
að taka á sig byrðar og skyldur
fullorðinsáranna fyrr eða síðar, og
það er ekki ákjósanlegt, að við
drögum það of lengi. Margir for-
eldrar reyna ósjálfrátt að láta börn-
in sín vera börn sem allra lengst,
vegna þess að þeim finnst sárt að
missa þau.
ÖNNUR ÁHUGAMÁL
Hvernig á að forðast slíkt?
Börnin eru auðvitað stór þáttur
í lífi foreldra sinna, einkum þó
móðurinnar, en það er æskilegt, að
foreldrarnir eigi önnur áhugamál
en börnin ein, bæði vegna barn-
anna og þeirra sjálfra. Börnin þurfa
að læra, að foreldrarnir eru ekki
bara til þeirra vegna, heldur eigi
líka sitt einkalíf á öðrum sviðum.
Læra börnin einnig á því að
heyra foreldrana rífast sín á milli?
Já. innan vissra takmarka. Það
^æri heimskulegt að reyna að telja
börnum trú um. að tvær fullorðn-
ar manneskiur geti lifað saman án
þess að verða nokkurn tíma ósam-
mála. Oa ef rifrildið keyrir ekki úr
hófi, á það að vera skaðlaust. Hins
vegar ættu foreldrar aldrei að láta
börnin hevra. að þau séu ágrein-
in<?sefnið. því að það geta þau not-
að sér.
Svo er óþarfi að fá samvizkubit,
bótt maður reiðist öðru hveriu við
börnin sín. Ef við erum alltaf um-
burðarlynd og skilningsrík, læra
börnin ekki rétta hegðun og geta
orðið óþolandi vargar.
ORSAKIR ERFIÐLEIKANNA
Hvers vegna er svona erfitt að
vera foreldrar nú á dögum?
Vegna þess að það er stöðugt
verið að ráðast á foreldra og kenna
þeim um alla hluti sem aflaga fara.
Það þarf mikið sjálfstraust til að
halda fast við skoðanir sínar þegar
fullyrðingunum rignir yfir mann
sinni úr hverri áttinni og hvorki
uppeldisfræðingar né aðrir eru
sammála jafnvel um aðalatriði. Það
er allt í lagi að efast stundum um
réttmæti skoðana sinna, en það er
ekki gott að breyta uppeldisaðferð-
unum í sífellu, því að þannig verða
börnin aðeins ringluð og óviss.
Við verðum að kenna börnunum
að vera raunsæ og hegða sér á já-
kvæðan hátt gagnvart samfélaginu.
Við eigum ekki að reyna að láta
þau halda, að við höfum enga galla,
en við verðum að leggja okkur
fram við að sýna þeim hvernig
hægt sé að lifa ánægjulega í sam-
félagi við annað fólk, hvernig bæði
þurfi að gefa og taka, og hvernig
það sé að miklu leyti undir okkur
siálfum komið hvort lífið verður
okkur gott eða vont. I fyrstu lærir
barnið ytri siði og venjur, en seinna
skilur það innihald þeirra. Áður en
það getur sjálft farið að spila á
hljóðfæri, verður það að læra nót-
urnar.
*