Úrval - 01.10.1969, Page 48

Úrval - 01.10.1969, Page 48
46 ÚRVAL hjarans", líkt og þeir streymdu til gullsvæðanna í Klondike í Alaska árið 1896. Alls staðar getur að líta merki um þann uppgangstíma þessa norð- urhjara, sem nú hefur hafizt. Þar sem ísbirnir og elgsdýr reikuðu áð- ur, eru nú flugvellir og nýir vegir, og ljósin í búðum þeim, sem menn þeir hafast við í, sem starfa þarna við olíuboranir og alls konar athug- anir, glampa mitt í auðn heims- skautanæturinnar. Á 77000 fermílna svæði þessarar auðnar er að finna geysileg auðæfi. Þarna hefur fundizt olía, og svo kann að reynast, að þarna sé að finna stærsta og mesta olíusvæði, sem enn hefur fundizt í Norður- Ameríku. Er þar um geysilega þýð- ingarmikla uppgötvun að ræða, ekki aðeins fyrir Bandaríkin heldur ger- vallan heiminn. í „U.S. News & World Report“ getur að líta eftirfarandi klausu: „Olífundurinn í Alaska mun ef til vill gera Bandaríkin sjálf sér nóg um næstu framtíð, hvað snertir ol- íu á sanngjörnu verði. Það virðist sem jarðolíu |Band£(ríkjanna hafi tvöfaldazt á einni nóttu.“ MENN ÖRVÆNTU í FYRSTU Eskimóar hafa vitað öldum sam- an um olíuna, sem seytlar stöðugt fram í þessari svokölluðu „Norður- brekku“. í síðari heimsstyrjöldinni sendi Franklin D. Rooseveld forseti svo leiðangur til Alaska til þess að leita að nýjum olíulindum vegna hinna geysilegu þarfa landsins fyrir olíu til stríðsrekstursins. Leiðang- ursmenn staðfestu þann grun, að á svæði þessu væri bæði að finna olíu og jarðgas. Að svipaðri niður- stöðu komust þeir, sem tóku þátt í leiðöngrum, sem ýmis olíufélög gerðu út á þessar slóðir. Þetta allt varð olíufélögunum hvatning til þess að taka á leigu ýmsar spildur, bæði í fylkis- og ríkiseign og' hefja boranir í rannsóknarskyni. Árum saman bar þessi viðleitni olíufélaganna engan árangur. Þau létu bora samtals tíu holur, sem allar reyndust þurrar, og eyddu í þessar tilraunir milljónum dollara. Forráðamenn olíufélaganna tóku að örvænta um nokkurn árangur. Vet- urinn 1967—68 hófu samt olíufélög- in Atlantis-Richfield og Humble Oil & Refining Co. í sameiningu borun 160 mílum suðaustan við Barrow- nes. „Sú hola átti að verða síðasta tilraunin," segir Harrison Jamison, framkvæmdastjóri olíuboranna At- lantic-Richfield í Alaska. „Hefði enginn árangur orðið af henni, hefðu olíufélögin ekki snert aftur við Norðurbrekku árum saman.“ En þessi síðasta tilraun bar sann- arlega árngur, og þegar komið var fram í marzmánuð 1968, fengust orð- ið 2300 tunnur af olíu daglega úr holunni sem bar heitið „Prudhoeflói nr. 1“. En það er 164-falt það magn, sem fæst úr meðalholu í Bandaríkj- unum. í júní fékk félagið svipað magn úr annarri holu, sem boruð var við Sagána, 7 mílum suðaustur við h na. Og nú tilkynntu olíusér- fræðingarnir, að þessar tvær holur gætu reynzt vera svolítill forsmekk- ur af olíusvæði, sem hefði að geyma
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.