Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 49
OLÍUÆÐIÐ MIKLA í ALASKA
47
5—10 billjónir tunna af vinnanlegri
olíu.
Nú er a.m.k. heill tugur olíufé-
laga farinn að taka þátt í kapp-
hlaupi um leigu á landi og olíubor-
anir í Norðurbrekku. Jarðfræðing-
ar benda á, að á svæðinu sé að
finna a.m.k. 7 olíulög svipuð því,
sem borholurnar við Prudhoeflóa
og Sagá teljast til. Þess vegna gera
þeir ráð fyrir að þarna sé um að
ræða 20 eða jafnvel 40 billjón tunna
olíuforða, hinn langmesti í víðri
veröld.
í MYRKRINU OG KULDANUM
Það er erfitt og oft áhættusamt
verk að finna olíu í Norðurbrekku.
Baráttan hefst með því, að jarð-
fræðingurinn kemur fljúgandi norð-
ur eftir að sumarlagi og tekur að
vaða um rennblauta freðmýrina í
leit að hugsanlegum olíulögum.
„Mýflugurnar og önnur skorkvik-
indi eru óþolandi," segir Geofrey
Larminie, framkvæmdastjóri á
svæðinu fyrir British Petitolelum
Corp. „Og freðmýrarnar eru sann-
arlega ekki sléttar, heldur alsettar
hryggjum, sem eru um fet á hæð.
Maður verður að klofa yfir þessa
hryggi allan liðlangan daginn. Þess-
ar mishæðir hafa myndazt, er
klakalag freðmýranna lyftist, þegar
þiðnar."
Þegar jarðfræðingarnir hafa
lokið sínu verki, koma jarðskjálfta-
fræðingarnir á vettvang með sín
mælitæki. Þeir vinna að vetrarlagi,
því að þeir geta ekki beitt tækjum
sínum, nema yfirborð freðmýranna
sé stöðugt og haggist ekki. Þeir
ferðast um hið helfrosna land í sér-
staklega gerðum skriðbílum. Þeir
bora 75—100 feta djúpar holur með
vissu millibili, sem er mjög ná-
kvæmlega mælt. Síðan stinga þeir
sprengiefni í þessar holur. Þegar
þeir „sprengja“ holurnar, skrá raf-
eindamælitæki titringsöldurnar,
þegar þær endurvarpast frá jarð-
lögum neðanjarðar. Jarðskjálfta-
mælingar þessar, sýna svo, hvort
líkur séu á því, að þar sé um olíu-
lög að ræða og hvar bora skuli.
Það eru engar boranir eins erfið-
ar og dýrar sem þessar olíuboranir
norður á hjara heims. Það er t.d.
ekki hægt að reisa neitt mannvirki
á yfirborði freðmýranna án þess að
útbúa fyrst alveg sérstaka undir-
stöðu fyrir þau. Ástæðan er sú, að
efri hluti þessa 1000 feta djúpa
frostlags, sem aldrei þiðnar, mýkist
að vísu nokkuð á sumarmánuðun-
um. Og því hættir öllu því til að
sökkva, sem reist er á yfirborðinu
án nokkurrar sérstakrar undirstöðu.
Þegar setja skal upp olíuborturn,
eru því fyrst boraðar 20 feta djúpar
holur í jörðina. Svo er stungið í
þær tréstaurum. Og á þeim er svo
reist eins konar ,,boreyja“. Einnig
verður að leggja 5 feta djúpt mal-
arlag fyrir hvert það mannvirki,
sem hefur nokkurn teljandi þunga,
t.d. flugbrautir, eldsneytisgeyma og
sjálfar búðirnar, sem starfsmenn-
irnir búa í. Einn framkvæmdarstjóri
Pan American Petroleum Corp.
segir svo um þetta: „Tilraunabor-
hola kostar frá allt að því tífalt
það, sem hún kostar á svæðum á
suðlægari slóðum."
Hæfni manna og véla minnkar
mjög í miklum kuldum. Þótt olíu-