Úrval - 01.10.1969, Page 56
54
TJRVAL
Rósarkrossnemandinn hefur mæt-
ur á upprifjun og sjálfsskoðun og
hann lítur gjarnan yfir farinn veg.
Því meir sem hann lærir, því Þósari
verður honum þörfin á enn frekari
fræðslu, og hann heldur leit sinni ó-
trauður áfram. Hann gerir sér grein
fyrir þeirri staðreynd, að eftir því
sem þekking mannsins vex, gerir
hann sér betur grein fyrir þekking-
arleysi sínu og ófullkomleik. Hann
fylgir þeim staðreyndum, sem regl-
an kennir. og þar sem hann þekkir
kenningu hennar um hinn tvíþætta
mann, þá hugsar hann vel um heil-
brigði líkama síns jafnframt því,
sem hann þroskar hina andlegu hlið
verundar sinnar.
Rósarkrossnemandinn helgar sig
því verkefni að vekja hið dulda afl,
sem hvílir nær ónotað hið innra
með honum, en það gerir honum
kleift að nota meðfædda hæfileika
sína til sköpunar hamingjusamara
og þarfara lífs. Hann leitar jafn-
vægis milli dulspekilegrar hug-
myndafræði og raunhæfra vísinda.
Hann reynir eftir megni að vinna
gegn hjátrú, þröngsýni, hatri og
umburðarleysi, og hann vinnur að
þroska alls mannkyns.
Hann sér hið góða í öllum trúar-
brögðum og viðurkennir rétt manna
og frelsi til trúariðkunar. Hann
styður einsaklingseðli þeirra og
reynir ekki að þvinga fram umbæt-
ur. Með því að dýpka sína eigin vit-
und, leitar hann eftir betri aðstæð-
um til handa öllum. Hann lætur sér
í léttu rúmi liggja, hvaða trúarsöfn-
uð reglubróðir hans, vinur eða ætt-
ingi kýs að sækja eða styðja.
Rósarkrossnemandinn gerir sér
vel ljóst, að hann öðlast enga trygg-
ingu gegn enn frekari vandamálum
eða mótlæti, þótt hann sé orðinn
meðlimur Rósarkrossreglunnar.
Hins vegar er hann þess fullviss, að
ef hann kynnir sér lögmálin og
fylgir þeim bendingum, sem hon-
um eru gefnar, muni hann öðlast
þann aukna styrk, kraft og skilning,
sem nægir honum til að sigrast á
vandamálunum.
Hann byrjar hvern dag með
þakkargjörð fyrir enn nýtt tæki-
færi til að vinna, lifa og þjóna.
Hann biður, að sér verði veitt leið-
sögn, svo að dagurinn verði sér og
sínum einhvers virði, og hann leit-
ast við að fylgja þeirri leiðsögn.
Hann gerir þakkir fyrir mat sinn.
Og að loknum degi gefur hann sig
forsjóninni á vald, svo að á meðan
hinn jarðneski líkami hans sefur, sé
hinum innra mann; leyft að halda
áfram starfi undir leiðsö^n hins
„kosmiska" í þágu alls mannkyns.
Rósarkrossnemandinn þjónar
vegna ánægjunnar einnar við að
þjóna og sækist ekki eftir persónu-
legu þakklæti, lofi eða endurgjaldi.
Hann vill gefa öðrum hlutdeild í
þeim veraldlegu efnum, sem hon-
um. hafa blessunarlega hlotnazt, og
þeim dulrænu hæfileikum, sem hann
hefur þjálfað með sér.
Hann veit, að hann verður að
gefa, áður en hann getur tekið við.
Það er kunn staðreynd, að vatns-
dæla dælir ekki vatni, fyrr en hún
hefur verið fyllt vatni, en þá gefur
hún einnig ríkulega. Að hrifsa t.il
sín er einkennandi fyrir lægri til-
veru mannsins, en einkenni æðri til-