Úrval - 01.10.1969, Page 64

Úrval - 01.10.1969, Page 64
62 ÚRVAL elska framar," skrifaði Aurore hon- um. „Sérhver taug hjarta míns titrar í samræmi við hjarta þitt, því að þú og ég erum ein vera, ein sál, eitt líf. Og þótt við værum í sitt hverju heimshorni, mundi þessi guðlega samkennd samt sameina okkur.“ Aurore hefði getað haldið lífi í slíku sambandi um ófyrirsjáanlega framtíð, en það gat Aurelien aftur á móti ekki. Þó þraukaði hann lengi, því að samband þeirra stóð í fimm ár. En á þeim tíma hafði Aurore eignazt annað barn með eiginmanni sínum og sýnt Aurelien þannig, að hún var ekki nein yfir- náttúrleg ljósvakavera, þegar allt kom til alls. Og svo fór að lokum, að hann þreyttist á þeirri erfiðu baráttu að viðhalda hinum háleita anda sambands þeirra. Þau fjar- lægðust hvort annað, og að lokum slitnaði alveg upp úr vináttu þeirra. Á þessum sömu árum uppgötv- aði Aurore, að eiginmaður hennar var henni ótrúr. Hann drakk og vakti almenna hneykslun í hérað- inu. Hún rakst á erfðaskrá hans dag einn, og þá uppgötvaði hún, að honum stóð alveg á sama um hana. Hún skrifaði, að erfðaskráin hefði haft að geyma „bölbænir hans mér til handa og ekkert annað.“ Hjónaband hennar hafði nú misst alla þýðingu í hennar augum. Hún ákvað nú að halda til Par- ísar og búa þar 6 mánuði ár hvert. Hún var viljasterk, ung kona. Eig- inmaður hennar lét undan henni og leyfði henni að fara. Þetta var árið 1831, og Frakk- land var undir stjórn Lúðvíks Fil- ippusar. Borgarastéttin réð mestu um stjórn landsins, en það ríkti mikil ólga í París. Listamenn og aðrir andans menn voru í miklum uppreisnarhug. Þá var París eins og æ síðan hið fyrirheitna land hæfileikaríks ungs fólks (og hæfi- leikasnauðs), sem var misskilið í heimabyggð sinni, en þráði að helga listinni líf sitt og njóta lífsins. Þetta unga fólk drakk og dansaði, það elskaði, málaði og samdi. Þetta var hin hefðbundna Parísarborg hinn- ar miklu erfðavenja, sem voru sí- fellt endurnýjaðar af hverri kyn- slóð. Kaffihús, kampavín, jafnvel eiturlyf. Ástríðurnar voru dýrkað- ar sem guðir. Furðulegur klæðnað- ur, villt líf. Karlmennirnir gengu með skegg og sítt hár. Konurnar steyptu sér út í ástarævintýri. Það var þessi listamannaveröld, sem Aurore Dudevant kastaði sér út í opnum örmum. Hún hafði líf- eyri frá manni sínum, en hún vildi sjálf afreka eitthvað og skapa sér nafn. Brátt hafði hún flutzt í íbúð ungs, veikbyggðs manns, sem var úr sama héraði og hún. Hann hét Jules Sandeau. Þetta var dæmigert samband ungrar konu og ungs manns, sem ætla að brjótast áfram á listabrautinni, samfélag starfs, ástar og sameiginlegs heimilishalds. Hún hafði reynt að semja, áður en hún fór til Parísar, og hún var ákveðin í að hasla sér völl í heimi bókmenntanna. Þau Sandeau reyndu að vinna saman að blaða- mennsku og ritstörfum. Aurore fór að klæðast sem karl-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.