Úrval - 01.02.1970, Page 62

Úrval - 01.02.1970, Page 62
60 ÚRVAL gæti upplifað Nirvana. En Nirvana er sálarástand, þar sem enginn vott- ur af sjálfselsku né eigingirni fyrir- finnst. í slíku hreinsuðu vitundar- ástandi getur maðurinn fundið og greint hinn alls staðar nálæga and- lega veruleika. En samkvæmt kenn- ingum Búddha eru sjálfselskan og eigingirnin sem alls staðar er nálæg eins og krabbamein í sálarlífinu, sem eitrar það og spillir því. Kenningar Hindúa um eðli mannssálarinnar og kenningar Búddha, sem settar voru fram fyrir 2500 árum, eru stórmerkileg sálar- fræði, og nú á þessari öld er vest- ræn sálarfræði að uppgötva ýmis sannindi um sálarlíf mannsins, sem Austurlandabúar þekktu fvrir 25 öldum. En auðvitað eru kenningarnar um alnálægan andlegan veruleika og leiðina, sem fara þarf til að upp- götva hann, ekki eingöngu indversk- ar. Þær finnast meðal mystíkera allra alda og einnig innan margvís- legustu heimspeki- og trúarkerfa. Það er alls staðar lögð áherzla á sömu aðalatriðin. Vegna þess hve uppgötvanir vest- rænna sálfræðinga eiga margt sam- eiginlegt með kenningum indverskra heimspekinga og viðhorfum margra mystíkera, benda þær á hugsanlegt svar við spurningunni um ráðgátu dauðans. Þessar niðurstöður, ef þær eru réttar, benda til þess, að dauð- inn sé hvorki útslokknun sjálfsvit- undarinnar, né persónulegur ódauð- leiki, heldur sameining við alnálæg- an veruleika, sem persónuleiki mannsins hefur um tíma losnað frá. Hann hefur fengið tímabundið sjálf- stæði frá kjarna sínum og upp- sprettu, en goldið fyrir það með einangrun sinni og einstæðingsskap. Ef þetta er rétt, hafa skáldin ekki síður lýst þessari hugmynd en heim- spekingar og mystíkerar. Er þetta ekki álit gríska skáldsins Euripi- desar, þegar hann segir: „Hver veit, nema við verðum að deyja fyrst til að vita, hvað raunverulegt líf er. Hver veit, nema lífið hefjist með dauðanum og það, sem við köllum líf, sé dauði.“ Euripides var einn af forsvarsmönnum hellensku skyn- semisstefnunnar. Þá er ekki síður merkilegt að sjá þessar sömu hugmyndir koma fram meðal vestrænna ljóðskálda, eftir að nútíma vísindi tóku að hefjast til vegs og virðingar. Ensku skáldin Henry Vaughan og William Woods- worth fjalla um sömu hugmyndir og Euripides í ljóðum sínum. Þeir segja að lífið, eins og það birtist í mannlegum persónuleika hér á jörðu, sé aðeins grein af ólíkara og betra lífi frá öðru og dýpra sviði tilverunnar. Barnið býr yfir óljós- um endurminningum um sín sönnu heimkynni, meðan það er ungt. Þó fölna þær með aldrinum og gleym- ast, þegar barnið er fulltíða og verður fangið af lystisemdum og þörfum jarðlífsins. Þegar gleði og sorgir lífsins hafa svo verið reyndar til þrautar og halla tekur undan fæti, er elli og síðan dauði sækja að, vakna bernskuminningarnar um hin sönnu heimkynni ef til vill aft- ur. Um þetta fjalla ljóð Vaughans og Wordsworth. Ef sannleikurinn um lífið og dauðann er óljós, þá er ástæðan fyr-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.