Úrval - 01.03.1971, Blaðsíða 70
68
ÚRVAL
var byrjað að leita að líkunum.
Þegar þessari vinnu var lokið viku
síðar höfðu rúmlega 630 drukknað,
og þar voru 8 af 14 hásetum skips-
ins. Þeir, sem ekki þekktust voru
lagðir í jörðina nafnlausir. Það
verður aldrei unnt að upplýsa,
hvað margir, einstæðir karlar eða
konur, sem enginn saknaði, fórust
í harmleiknum á Tempsá.
HVERS VEGNA
OG HVERNIG?
Um miðnætti hafði þessi hræði-
lega frétt borizt til Lundúna og
grátandi og skelfdir ættingjar
þyrptust með lestum til Woolwich.
Þeir ráfuðu um göturnar í lítilli
borginni og leituðu ástvina sinna
í bjarmantim frá flöktandi gaslukt-
unum. Einstaka fundu þá tiltölu-
lega fljótt, en þeir voru alltof marg-
ir, sem glöddust ekki við þá sýn.
Margir biðu í marga daga og skoð-
uðu hundruð líka, áður en þeir
gátu loksins sagt: „Já, þetta er hún“
eða: „Já, þetta er hann“.
Á meðan kröfðust hneykslaðir
borgarar, sem voru óvanir svo
miklum slysum, að vita, hvernig
annar eins harmleikur gæti átt sér
stað. Það kom í ljós við rannsókn-
ir og fleiri opinberar athuganir á
slysinu, að það væru fyrst og
fremst hinar tilviljanakenndu sigl-
ingareglur, sem hefðu orðið til þess
að skipin tvö rákust á. Og að Grin-
stead skipstjóri skyldi ráða mann
eins og John Eyres, sem hann
þekkti ekkert til, fyrirvaralaust, og
láta hann vera undir stýri allsend-
is óvanan stjórn jafnstórs skips og
„Alice prinsessu", gat verið orsök
þess, að slysið varð svo hörmulegt.
Vanur maður hefði kannski slopp-
ið með hræðsluna.
Björgunarútbúnaður „Alice prin-
sesSu“ var mjög ófullnægjandi og
hafði sitt að segja um það, hvað
margir féllu fyrir ljá dauðans. Hér
var blátt áfram um ótrúlega blöndu
af hugsunarleysi og vanrækslu að
ræða.
Opinber nefnd yfirheyrði í þrjár
vikur mörg vitni og lagði síðan
fram drög að þeim siglingareglum,
sem nú gilda á Tempsá: Öll skip,
hvað stór sem þau eru og hvort
sem það er heppilegt hverju sinni
eða ekki, skulu alltaf halda til
stjórnborðs. Skip, sem siglir þvert
yfir fljótið eða breytir um stefnu
á að gera það án þess að ónáða
aðra farkosti. Þessar reglur gilda
enn í dag án markverðra breyt-
inga. Auk þess var þess krafizt, að
ekkert skip megi leggja frá höfn
án þess að hafa meðferðis björgun-
arbelti handa öllum, sem um borð
eru. Afleiðingarnar eru þær að allt
frá þessum hörmulega sumardegi
1878 og hingað til hefur ekkert skip
farizt með slíkum voðaafleiðingum
á brezkum fljótum. Það má því
segja að því hafi mörg hundruð
farþeganna með „Alice prinsessu"
ekki dáið til einskis.
☆