Goðasteinn - 01.03.1969, Page 14

Goðasteinn - 01.03.1969, Page 14
Ágúst H. Bjarnason: Reyniviður Talsverð hjátrú loðir við ýmsar plöntur, er vaxa hér á landi, og í trúarbrögðum frumstæðra þjóða koma plöntur víða við sögu. Lækningamátt plantna hafa mennirnir þekkt frá alda öðli, og gekk það oft kraftaverki næst, hve skjótan bata menn hlutu, er þeir höfðu neytt ýmissa plöntutegunda. Líklega hefir þetta valdið því, að lækningamáttur plantna var tengdur töfrum. Margvísleg trú var á plöntum. Til að mynda áttu hjartalaga blöð að lækna hjartveiki, nýrnalaga blöð nýrnaveiki o. s. frv. Steinbrjótstegundir þóttu góðar við blöðrusteini, og er hið latneska heiti þeirra af því dregið (Saxi- fraga; lat. saxum = grjót og lat. frangere = brjóta). Hér á landi munu margir hverjir drekka te af vetrarblómi til þess að bíða bót meina sinna og hefir það gefið góða raun. Mjaðurtin var notuð til að finna þjófa, og lásagras eða ferlaufasmárinn (Paris quadrifolia L.) lýkur upp hverri læsingu, sem hann er borinn að. Reyniviðnum (Sorbus aucuparia L.) fylgu níu náttúrur góðar og níu vondar. Hann er af rósaættinni (rosaceae) og telst til undir- ættar, sem nefnist apaldursdeild (pomoideae; lat. pomifer = sá, sem ber epli), en apaldur merkir „eplatré“. Reynirinn blómgast í júní, og eru blómin mörg saman í stórum hálfsveipum, hvít á lit. I september þroskast berin, og eru þau hárauð á lit og súr á bragðið. Þau þykja góð í mauk, og einnig var búið til seyði úr þeim. í grasa- fræði Odds Hjaltalíns segir, að „berin þurrkuð, etin 10 á morgni og io á kvöldi, er gott meðal móti blöðrusteini." 12 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.