Goðasteinn - 01.03.1969, Blaðsíða 68
þeim hreyft, og lengi munu sumir veggirnir standa og bera vitni
um starfshæfni og dugnað Hallgríms Bjarnasonar. Bær Markúsar
Loftssonar stóð nokkru hærra og austar í túninu. Má þar enn sjá
húsarústirnar, þó allt grjót væri flutt úr þeim. Sá bær stóð á þeim
stað 156 ár.
Af því, sem hér hefir verið sagt, vona ég, að hver sem les, geti
- ef hann kemur í Hjörleifshöfða - fundið bæjarstæði Ölvis land-
námsmanns og bæjarstæðin tvö uppi á Höfðanum.
Höfundur þessa þáttar, Kjartan Leifur Markússon, er lesendum Goðasteins að
góðu kunnur. Hann dó 15. sept. 1964, sbr. Goðasteinn, 1. hefti 1965, bls. 41-42.
Leiðréttingar
Þrjár mcinlegar villur hafa orðið í prentun ljóðsins Ása-Þór eftir
Hclga Hannesson frá Sumarliðabæ, er birtist í síðasta hefti Goða-
steins, bls. 57-58. í fimmta vísuorði fyrstu vísu skal vera felu/n í
stað fólum. í fjórðu vísu skal fjórða vísuorð vera: Versti fjandi
gnðarmaka. í sjöttu vísu skal fimmta vísuorð vera: Mörg af vænstu
verkum landans. Goðasteinn biður höfund velvirðingar á þessum
glöpum, og lesendur biður hann að leiðrétta ljóð Helga í umgetnu
hcfti samkvæmt þessu.
66
Goðasteinn