Goðasteinn - 01.03.1969, Blaðsíða 21
Guðlaugur E. Einarsson
frá Arnkötlustöðum:
Hagalagðar
Sagnir
Halldórs Teitssonar
Hér fara á eftir nokkrar sagnir, sem ég skráði eftir Halldóri
Teitssyni í Hafnarfirði. Halldór var fæddur í Keflavík 1886, sonur
Vilborgar Halldórsdóttur frá Syðri-Rauðalæk í Holtum, systur
Runólfs hreppstjóra og þeirra mörgu systkina, og Teits Þorsteins-
sonar frá Skarði. Halldór ólst upp frá sjö ára aldri á Brekkum í
Holtum hjá móðursystur sinni, Guðlaugu, og manni hennar, Sig-
urði S'gurðssyni. Síðar var hann vinnumaður (1914-19) hjá Guð-
mundi lækni Guðfinnssyni á Stórólfshvoli. Þá bóndi nokkur ár í
Snjallsteinshöfðahjáleigu. Flutti þaðan til Hafnarfjarðar. Bjó þar
síðast á Nönnustíg 6 og stundaði jöfnum höndum sjó og landvinnu.
Halldór dvaldi síðustu æviár sín á Hrafnistu og dó þar 26. jan.
1967. Hann var ræðinn, hafði frá mörgu að segja og sagði vel frá.
Einu sinni (það var 1936) spurði ég Halldór, hvort hann kynni
ekki frá einhverju að segja, dulrænu, sem fyrir hann hefði borið
um ævina. Hann lét lítið yfir því í fyrstu, en þó tíndist það til,
sem hér verður frá sagt.
Godasteinn
19