Goðasteinn - 01.03.1969, Blaðsíða 32
Akureyri. Jónas „læknir“ - en svo var hann kallaður manna á
meðal - drukknaði í Djúpadalsá 23. sept. í lækningaferð. Um hann
mátti segja:
Konungs hafði hann hjarta
með kotungsefnum
á líkn við fátæka
fátækt sína ól.
Bjarni Thorarensen.
II.
Jónas Jónasson var bráðgjörr í bernsku. Þótti sncmma námgjarn
og minnugur. Hann las hverja bók, er hann kom höndum yfir.
Þessi gáfaði sveinn var því settur til mennta og sendur síra Hjör-
leifi Einarssyni, Goðdölum, til læringar. Kenndi hann Jónasi undir
skóla. Vorið 1875 tóku þeir Jónas og Einar sonur Hjörleifs prests
inntökupróf í Reykjavíkurskóla. Jónas rækti námið vel en las þó
mjög aðrar bækur en námsbækur sínar. Hann varð stúdent 1880
með I. einkunn og lauk prófi úr prestaskóla 1883 með I. einkunn.
Honum var veitt Landsþing í Rangárvallasýslu 10. sept. 1883. Grund-
arþing í Eyjafirði 21. okt. 1884, flutti þangað vorið 1885 og hélt til
1910. Bjó á Hrafnagili, enda jafnan við þann bæ kenndur. Prófastur
í Eyjafirði 1897-1905. Jafnframt embætti sínu tók Jónas að stunda
tímakennslu við Gagnfræðaskóla Akureyrar. Settur 2. kennari við
skólann 1908. Veitt 3-ja kennaraembættið 1910 og lét þá af prests-
skap.
íslenzka tungu kenndi hann alla þá stund, er hann starfaði við
skólann. Var hún aðalkennslugrein hans og honum næsta hugljúf.
Auk þess kenndi hann sögu og félagsfræði, sögu íslendinga og
stærðfræði. Þessu kennaraembætti gegndi hann til vors 1917, er hann
varð að láta af því sökum vanheilsu. Flutti hann þá til síra Friðriks
Rafnars, sonar síns, er þá var prestur á Útskálum. En heilsu hans
hnignaði. Leitaði hann sér lækninga í Reykjavík en fékk enga
meinabót. Þar dó hann 2. ágúst 1918, nálega tveimur vetrum meir
en sextugur. Hann var síðan fluttur norður til Eyjafjarðar. Hvílir
hann þar í Munkaþverárkirkjugarði.
30
Goðasteinn