Goðasteinn - 01.03.1969, Blaðsíða 62
yfir taki seinni hluta eins góðveðurdags vorið 1941, er fjöldalcstir
brúngrárra brynvagna flæða hver eftir aðra suður heiðina, þar sem
slegið er tjöldum, svo næstu daga sýndist fljótt á litið, sem mikill
hluti heiðarinnar væri orðin ein tjaldborg. Seinna risu hér upp
hinir svonefndu braggar, sem allir þekkja nú. Þeir voru settir, að
því er virtist, af handahófi um alla heiði, þar til hún var að mestu
samfellt athafnasvæði flugvallargerðar og skotæfinga, einkum stór-
skota, með öllum þeim tryllitækjum og hávaða, sem því fylgdi. Þar
var engu lífi öryggi búið, er nærri kom, en landið sjálft sundurtætt
og rifið. Þess bíður það seint eða aldrei bætur. Fjöllin sjálf eru nú
sundurtætt og rifin og horfa holum tóttum yfir viðurstyggð eyði-
leggingarinnar, svo sem Stapafell og Súlur, en Háaleiti er með öllu
þurrkað út og mófuglalíf allt að mestu horfið. Til undantekninga
telst, ef heyrist í einni og einni lóu eða spóa um hásumarið. Þannig
cr myndin í dag, næsta ólík því, sem var 1927 og þar áður. Ef til
vill hafa hollvættir Hafnaheiðar verið að spila sitt síðasta lag í
miðsvetrarkyrrðinni 1927. Maður spyr og spyr en skilur svo sára-
lítið.
Orðsending
til kaupenda Goðasteins
Sakir vaxandi útgáfukostnaðar neyðumst við til að hækka
árgjald upp í kr. 150,00. Biðjum ykkur að virða okkur þetta
til vorkunnar og senda greiðslu sem áður með góðum skil-
um.
Fyrir þá, scm fá ritið í pósti, er heppilegast að senda ár-
gjaldið með póstávísun. Eyðublað fylgir.
Þökkum ágæt kynni á liðnum árum og sendum ykkur öll-
um árnaðaróskir.
Útgefendur
.--------------------------------------------------------------
60
Goðasteinn