Goðasteinn - 01.03.1969, Blaðsíða 78
anna. Þarna er það, sem safnvörðurinn í byggðasafninu mætir
einum vanda sínum. Hvað á hann að gera, þegar góðviljaður
maður sendir eða kemur færandi hendi með forngrip, e. t. v. fyrir
skömmu eða löngu jarðfundinn, og óskar þess, að heimasafn hans
varðveiti eða ekkert ella? Starf safnvarðar og mat á í senn að
mæta dómi samtíðar og framtíðar. Einu sinni var landssafn Is-
lendinga úti í Kaupmannahöfn, og engum þótti neitt athugavert við
að senda þangað forna dýrgripi þjóðarinnar. Seinna eignuðumst
við Þjóðminjasafn, sem aldargamalt sá börn sín, byggðasöfn, vera
að vaxa úr grasi.
Ekkert safn fer í launkofa með þá gripi, sem það hýsir. Því er
mér engin launung á um elztu gripi byggðasafnsins í Skógum.
Nokkrar ljósakolur úr steini geta verið frá fornöld eða mið-
öldum, þó líklega hafi notkun þeirra þekkzt fram um aldamótin
1800. Sama máli gegnir um aldur margra snældusnúða úr steini.
Sumir þeirra eru án vafa frá fornöld, en dæmi þekkjast þó um
notkun þeirra í tóskap fram á síðustu öld (árenningur, þráðar-
snælda).
Frá eyðibýlinu Lundi í Fljótshverfi varðveitir byggðasafnið a.
m. k. tvo merka hluti: hverfistein og beltissprota úr málmi, lag-
]ega skreyttan. Hverfisteinninn - ef hverfistein skyldi kalla - er
aðeins um 5 cm í þvermál. Erlingur Filippusson grasalæknir í
Rcykjavík hafði lengi geymt hann í hirzlu sinni, cr Skógasafn
hrcppti hann að gjöf. Beltissprotann gaf Jón Sigmundsson á Núp-
um í Fljótshverfi og hafði sjálfur fundið hann í Lundi í byrjun
þessarar aldar. Lundur mun hafa farið í eyði um 1400 og má af
því marka aldur þessara gripa.
Steðjaeign Skógasafns er góð og áhugaverð. Þrír steðjar eru þar
sérstæðir og ólíkir hver öðrum, steðji frá Arnarhóli í Landeyjum,
nefndur „steðjinn hans Þorgeirs Skorargeirs“, steðji frá Hamra-
görðum undir Eyjafjöllum og steðji frá Bollakoti í Fljótshlíð. Steðj-
inn hans Þorgeirs Skorargeirs, sem skal vera gamli staðarsteðjinn
í Holti, á - að því er ég bezt veit - engan jafningja á Islandi.
Hann virðist eiga nokkra samstöðu með steðja á alþekktri norskri
tréskurðarmynd frá stafakirkjunni að Hylestað í Noregi frá um
1200, myndinni af smiðnum og manninum, sem blæs belginn.
76
Goðasteimi