Goðasteinn - 01.03.1969, Blaðsíða 11
og fyrr var getið. Veturinn 1909-10 var ég í Reykjavík og hafði
hug á að komast í Menntaskólann, en vantaði kennara til að undir-
búa mig fyrir prófið. Fór það svo, sakir ónógs undirhúnings, að ég
féll á prófinu og var þar með lokið lærdómsframa mínum í bili.
Sumarið 1910 var ég smali á Felli í Biskupstungum og leið mér
þar vel. Um haustið og veturinn eftir stundaði ég vinnu í Viðey
við fiskþvott og síðar í fiskþurrkhúsi H. P. Duus í Reykjavík. Féll
mér sú vinna miklu verr en sveitavinna. Kaupið var þá 15 aurar
um tímann og unnið venjulega í ellefu stundir á dag. Stundum var
unnið lengur, eða eftirvinna, en tímakaupið var þó ekkert hærra
en í dagvinnunni.
Um vorið 1911 réði faðir minn mig til Gísla Hjálmarssonar út-
gerðarmanns á Norðfirði og þar var ég við fiskaðgerð og beitingar-
störf fram í nóvember um haustið. Var þetta oft erfið vinna og
langur vinnutími. Kaupið var 20 krónur á mánuði auk uppihalds,
fæðis og húsaskjóls. Ég kunni vel við mig þarna, þótt fæðið væri
mjög einhæft, alltaf nýr fiskur alla virka daga og oftast smáþorsk-
ur. Kjöt var á sunnudögum, en ekki valið af betri endanum. Var
það íslenzkt kindakjöt, er skilað hafði verið frá Noregi, og ekki
laust við að vera lágnað. Gísli útgerðarmaður var duglegur, en
talinn var hann vinnuharður eins og sagt var um Konráð bróður
hans í Mjóafirði.
Um miðjan nóvember fór ég með gufuskipinu „Mjölni“ til
Reykjavíkur. Um vorið hafði faðir minn gerzt timburmaður á
norsku flutningaskipi og var á því allt til hausts, en dvaldi því
næst í Noregi til vorsins 1912. Þegar ég kom heim, voru ástæður
þar ekki góðar, svo að kaup það, sem ég kom með, kringum 100
krónur, kom í góðar þarfir. En ekki fékk ég neitt að gera, þótt
útgerð væri þá í uppgangi. Ég þurfti þó að vinna fyrir mér. Dálítið
var þá um byggingarframkvæmdir í bænum og talsvert notað af
mulningi, þ. e. smámulinn grásteinn. Ég tók mér því fyrir hendur
að mylja grjót og setti mulningarstöð mína niður við suðurenda
Óðinsgötu, því að nokkuð var af viðráðanlegu grjóti þar nálægt.
Sótti ég þessa vinnu af kappi og urðu afköstin að meðaltali 4-5
tunnur á dag. Tunnan var seld á tuttugu og fimm aura, svo að dag-
kaupið varð því rúmlega ein króna. Ég minnist þess, að gamli
Godaste'mn
9