Goðasteinn - 01.03.1969, Side 20

Goðasteinn - 01.03.1969, Side 20
þeim aftur á flot. Þessu var fljótt hætt, er í ljós kom, að það borg- aði sig ekki, og uppúr því fór líka að minnka um, að menn sæktu skóg. Síðustu skógarferð mína mun ég hafa farið haustið 1959 og þá á jeppabifreið með kerru í togi. Fór ég að morgni dags og kom heim að kveldi. Man ég, að mér þótti breytingin mikil til bóta. Á kerrunni mun ég hafa flutt 4-5 hestburði, og var það allmikill skógarstafli. Þarna var fyrirhöfnin lítil, borið saman við gömlu skógarferðirnar. Margt af þessu gamla háttalagi mátti hverfa. Nú hefur það minningarlegt sögugildi og gott að halda því til haga fyrir fram- tíðina. Við megum ekki grafa gömlu minningarnar í djúpið, því nóg er samt, sem skeflir yfir. Hermanníus Johnson sýslumaður: Hekíugosið 1878 Hekla í stórum hnyklum handarvana sendir afar með ákafa eld að skýja veldi. Sól og himin hylur, þá hamast skassið rama, stynur dimmt og drynur, svo draugar vakna í haugum. Við skulum allir vera vongóðir, þó svona lítið móti láti, lengi vart það gengur. Alfaðir því elur önn fyrir vorum sönnu gæðum, vilja góðum gefur hann styrk án efa. 18 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.