Goðasteinn - 01.03.1969, Side 35

Goðasteinn - 01.03.1969, Side 35
höfn. Hann settist að á Selfossi 1922, var þar lengst af bankaféhirðir og gegndi fjölmörgum öðrum trún'aðarstörfum. Meðal annars sat hann í hreppsnefnd Sand- víkurhrepps og var oddviti um skeið. Var einnig í fyrstu hreppsnefnd Selfoss- hrepps, eftir að hann var stofnaður. Björn var höfðingi í sjón og raun, fræðimaður ágætur og einkum mikill og snjall ættfræðingur. Skömmu fyrir andlát sitt eftirlét hann Goðasteini með- fyJgjandi aldarafmælisgrein' um síra Jónas fiá Hrafnagili, cn hana hafði hann flutt scm útvarpserindi fyrir röskum áratug. Fyrir þetta þakkar Goðasteinn og margvíslega aðra liðsemd og góðvild á liðnum árum, kveður þenna vin sinit með söknuði, biður honum blessunar Guðs á nýjum leiðum æðri tilvcru og sendir ástvinum hans samúðarkveðjur. J. R. H. Endurtekin barnagæla I fyrsta hefti Goðasteins 1968, bls. 66, var birt vísa, cr fóstra sr. Lárusar Thorarensen kvað yfir honum í bernsku, skráð eftir dr. Sigurði Nordal. Henti þá það, er sízt skyldi, að röð orða raskaðist í einni hendingu, og varð að vonum af braglýti. Nú er góð vísa sjaldan of oft kveðin og því er hin gamla spekivísa um brennivín birt að nýju: Brennivín! ó, brennivín! ó, brennivín! Hversu sæt og furðu ágæt er fuktin þín. En eftir á kemur angur og pín eg hlýt þá að skammast mín og úti liggja eins og svín, eins og svín. Goðasteinn 33

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.