Goðasteinn - 01.03.1969, Page 37

Goðasteinn - 01.03.1969, Page 37
Hjónin á Fossi, Hafliði og Guðrún. Þessi hjón, Hafliði og Guðrún, voru miklir dugnaðarmenn og að sama skapi vel verki farin. Hafliði var listfengur spónasmiður, sá síðasti, er smíðaði Rangæingum spæni til að koma spónamat til munnsins, Guðrún ein hin listfengasta tóskaparkona, sem völ var á. Ætli margir muni enn ekki eftir ferðafötunum, sem hún kom upp handa honum Ragnari Ásgeirssyni ráðunaut? Ég veit ekki bet- ur en þau séu enn til og sómi sér vel. Frá Guðrúnu eru komin einhver fegurstu sýnishorn, sem ég hcf fengið af þræði og bandi. Þráðurinn hennar var svo fínn, að hægt var að nota hann í stað tvinna í saumavél. Geri aðrir betur. Hjá þessari konu hefði ég þurft að dvelja heilan dag, já marga daga, en viðstaðan varð lítið meira en tveir tímar, ef ég man rétt, og hérna er nokkuð af eftirtekjunni: Heima í Pykkvabæ Eg ólst upp hjá góðum foreldrum, og aldrei man ég eftir mikilli fátækt hjá honum pabba; hann fiskaði svo vel. Allt varð þó að Goðasteinn 35

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.