Goðasteinn - 01.03.1969, Side 46

Goðasteinn - 01.03.1969, Side 46
Meðallandínu“, segir umboðsmaður, þegar hann ræðir um bygg- ingu kirkjunnar hér á Langholti. Samkvæmt visitasíum er henni lengi vel við haldið. Sóknarbændur eru skyldaðir til að halda moldum hennar við, gera við veggi hennar og tyrfa þak hennar, en 1855 „er hún að falli komin“, segir prófastur, og 1857 ráðgerir umboðsmaður endurbyggingu hennar og áætlar kostnaðinn 1400 rikisdali. Hann verður að hugsa um margt. Þrjár kirkjur austan Sands verður að endurbyggja, - kirkjuna á Prestbakka, á Lang- holti og Þykkvabæjarklaustri, - og sandurinn herjaði óhugnanlega á Meðallandið. Með bréfi 1858 biður umboðsmaður amtmann um leyfi til að selja ekki lengur vogrekin, í þeirri von, að þau verði lögð til kirkju- bygginganna, og hann hafi von um að fá sögunarmenn „en þar til hefi ég enga brúkanlega sög“, og biður náðarsamlegast um leyfi til að „bestilla nýja engelska sög hjá Thorgrímsen kaupmanni á Eyrar- bakka, til að saga efni til kirknanna.“ Sóknarbændur hér knýja auðsjáanlega fast á að fá kirkju sína endurbyggða, en gæta hagsmuna sinna um leið. Umboðsmaður leggur fyrir hreppstjórann í Meðallandi, Magnús Magnússon 1 Sandaseli, í nóv. 1859 „að skylda bændur til að flytja trén af fjör- um á æki heim að Langholti, eða svo langt frá sjó, að sjórinn nái ekki til þeirra, og þar sem saga mætti þau til klyfja." Þung skylda er lögð á bændur. Stór tré rak á fjörur bænda, allt upp í 6 manna tak og erfiðir flutningar væntanlegir á efni, sem sækja vcrður alla leið vestur á Eyrarbakka. Fram að þessu höfðu bændur fengið V3 af virðingarverði vogreka, en þeir neita nú að bjarga og flytja vogrekin nema þeir fái V3 af timbrinu, og þeir fái fyrirfram úr því skorið, eftir hvaða reglum flutningi verði jafnað niður á bændur. Umboðsmaðurinn, Jón Jónsson á Höfðabrekku, kcmst í nokkurn vanda, en biður hreppstjóra að jafna timbur- flutningi niður á bændur eftir sama mælikvarða og aukaútsvari, „en hlýti bændur ekki þessari ákvörðun sinni, verður að leita sam- þykkis og skipunar sýslumanns eða æðstu yfirvalda,“ segir um- boðsmaður. Bændur hlýta þessu, og veturinn 1859-60 er byrjað að flytja timbur til hinnar nýju væntanlegu kirkju að Langholti. 1861 er 44 Goðaslebw

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.