Goðasteinn - 01.03.1969, Page 47

Goðasteinn - 01.03.1969, Page 47
yfirsmiður ráðinn, Jóhannes snikkari Jónsson frá Reykjavík, en : apríl árið eftir kom hann að Langholti til þess að skoða trén, sem ætluð voru til kirkjubyggingarinnar, en voru þá öll ósöguð. Hann telur að 4 menn þurfi þá staðfast að vinna sumarlangt við sög- unina, svo hægt verði að byggja kirkjuna á næsta ári. Og yfir- sögunarmaður er ráðinn, Páll Pálsson snikkari, þá á Mýrum í Álfta- veri, og með honum þrír aðrir, þ. á, m. Sigurður snikkari Sigurðs- son á Kirkjubæjarklaustri. Um áramótir. 1862-63 segir umboðs- maðurinn Jón á Höfðabrekku í bréfi til amtmanns ,,að hann hafi nú bestillt allt það, sem þurfi til Langholtskirkju hjá Thorgrímsen kaupmanni á Eyrarbakka, en það var: 12000 af 4-tommu saum, nooo af treitommu, 1000 stifti, 2 kagga af tjöru, 48 glasrúður, 16 pund af kýtti, 2 lása og dörrbeslag, 32 pund af dökkleitum íarfa, 40 potta af fernis, 10 potta af terpentínu og 24 pund af sinkhvítu." Þetta allt, segir hann, að komi með fyrstu skipum í vor, og legg- ur síðan fyrir hreppstjórann að sjá um, að bændur í sókninni, sem skyldir séu til þessarra flutninga, sæki það hi ðfyrsta þeir geti, eftir að það er komið á Eyrarbakka, en Thorgrímsen hafi lofað að haga því svo til, að ekkert sé þyngra en klyf. Sumarið 1862 eru tré rist á Langholti, bitar, stoðir, stífur, lang- bönd, sperrur og fjalviður. En sögun lýkur ekki þá. Það veldur umboðsmanni áhyggjum, og þar að auki sér hann, að kostnaður muni verða meiri en yfirsnikkarinn gerði í fyrstu áætlun um. Sög- unarkostnaður var áætlaður 260 ríkisdalir, en eftir sumarið 1862 var hann orðinn 363 rd. 36 sk., og sögun ekki nærri búin. Umboðs- maður býst við, að allt verði dýrara en í fyrstu var áætlað - „og þar að auki verð ég að borga fæði hinna fátækari sóknarmanna í Langholtssókn við kirkjuerfiðið, þegar þar að kemur,“ - en það reyndist síðar verða 11 rd. 8 sk. En sóknarmenn hér í Meðallandi áttu líka sín deilu- og áhyggju- efni í sambandi við endurbyggingu kirkjunnar. Kirkjan skyidi nú byggð úr varanlegasta efni þess tíma, sem hér var tiltækt, svo fyrirsjáanlegt var að hún stæði á þeim stað, þar sem hún yrði nú byggð, um tugi ókominna ára. Þar yrði engu um breytt. Það var deilt um, hvar hún skyldi vera endurbyggð, og það um mörg ár. 16. marz 1859 skrifuðu bændur á Efri- og Syðri-Steinsmýri, Goðasteinu 45

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.