Goðasteinn - 01.03.1969, Side 60

Goðasteinn - 01.03.1969, Side 60
líktist þá nokkuð iúðraþyt cn þó heldur veikari, er hlustað var nánar. Stanzaði ég þegar og leit í kringum mig og veitti því þegar athygli, að hinir eru líka stanzaðir. Heyri ég um leið, að Magnús Jónsson, sem næstur var mér, kallar til Guðmundar, hvort hann heyri nokkuð. Segir hann svo vera, enda reyndist svo við saman- burð, að allir höfðum við heyrt þetta undir eins og, að því er virtist, í svipaðri tónhæð, er við bárum þetta saman, en vegalengdin þó þessi, sem ég áður hef um getið (ca. 3 km), millum okkar, er fjærst gengum. Ekki viljum við nú ákveða með vissu, hversu lengi við heyrð- um þetta, en varla mun það hafa varað lengur en sem svarar tveimur mínútum. Eftir það hvarf það jafn snöggt eins og það kom fyrst, þó ef til vill heldur lægra, en það skiptir ekki miklu máli. Hitt skiptir meiru og verður að sjálfsögðu torskilið, hvað við heyrð- um þarna. Og eftir hverjum leiðum barst það okkur til eyrna þarna í miðri heiðinni? Mér varð fyrst til að hlaupa á næsta hól, er hátt bar yfir, ef vera kynni að ég sæi eitthvað, er skýrt gæti þennan einkennilega atburð, en svo var ekki, síður en svo; hér var ekkert það sýnilegt, er á nokkurn hátt gæfi svar, enda héðan 4-5 km leið skemmst til byggða. Því skal aðeins skotið hér inn, að þetta sama kvöld var haldin skemmtun í samkomuhúsi Hafnahrepps. Komst þetta þá til tals við ýmsa, og hafði enginn neitt slíkt heyrt þennan dag og þá heldur engin útvarpstæki í hreppnum. Oft hef ég síðan brotið heilann um, hvað þetta hafi verið, er við heyrðum þarna, en ekkert sennilegt svar fengið og fæ trúlega ekki. Vafalaust hefði þetta fyrr á tímum verið talið stafa frá huldu- fólki eða einhverju slíku og það því fremur, sem þetta var svo nærri áramótum, en ég fullyrði, að enginn okkar var í neinum slík- um hugleiðingum þarna, enda, að ég held, ekki neitt trúaðir á slíkt. En hvað sem því öllu líður, þá skeði hér eitthvað mjög óvenju- legt, miðað við allar aðstæður. Hjá mér hefur, síðan þetta skeði, oft vaknað sú spurning, hvort ekki geti skeð, að einhverjir staðir hér á jörð verði undir alveg sérstökum skilyrðum svo hrifnæmir fyrir hinum ýmsu tóntegundum á öldum ljósvakans, að úr verði einskonar útvarpsstöð eða öllu 58 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.