Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 64

Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 64
Þegar á allt þetta er litið og svo hvað víða eru góðar jarðir, sem lausar eru til ábúðar, tel ég víst, að langt verði þess að bíða, að í Höfðanum rísi aftur bær og byggð. Þess vegna mun nú bráðlega fenna þar yfir fornar slóðir. Ör- nefnin, sem eru mörg, munu gleymast, og þegar fólk, sem þar kem- ur til c.ð skoða þessa háreistu klettaborg, sér bæjarrústirnar, kann það engin skil á því, hvað þær eru gamlar eða hverjir reistu þar hús frá grunni. Einkum er það þó clzta bæjarstæðið, þar sem Hjör- leifur Hróðmarsson byggði skála sinn og þar sem Ölver iandnáms- maður byggði fyrsta bæinn í Höfðanum, sem nú mun öllum ó- kunnugt, nema þeim fáu, sem enn lifa og eru nákunnugir í Höfð- anum. Þegar þeir fóstbræður, Ingólfur og Hjörleifur, komu á skipum sínum hér upp að suðurströnd landsins, fór hvor sína leið. Ingólfur tók land við höfða þann, sem enn í dag er við hann kenndur, en Hjörleif bar miklu vestar, og tók hann land við þann höfða, sem alltaf síðan hefur verið nefndur Hjörleifshöfði. Þá var ekkert undir- lendi sunnan undir Höfðanum, því sjórinn lá þá upp að suðurhlið hans. Hjörleifur hefur því getað lagt skipi sínu alveg við höfðann. Þegar í land var komið, byggði Hjörleifur tvo skála. Voru það mikil hús, eftir því sem Landnáma segir, annað 18 en hitt 19 faðma langt. Þarna bjó Hjörleifur næsta vetur, en um vorið var hann veg- inn og menn hans allir af io írskum mönnum, sem hann hafði her- numið, illu heilli, á Irlandi, skömmu áður en haldið var til íslands. Talið er, að nokkuð mörg ár hafi liðið frá því Hjörleifur var veginn og þar til menn komu þar til að nema land. Segir í Land- námu, að þar hafi enginn þorað að nema fyrir landvættum síðan Hjörleifur var drepinn. Sá maður, sem fyrst nam land í Hjörleifs- höfða, hét Ölver, sonur Eysteins, sem fyrstur byggði Fagradal. Öl- ver nam land út að Grímsá, en austurtakm^rka er ekki getið. Mjög þykir mér líklegt, að Ölver hafi byggt bæ sinn þar hjá, sem Hjör- leifur byggði skála sína. Má benda á, að Ölve hafi komið vel að nota gt'jót, sem Hjörleifur hafði saman dregið í skálaveggina og því byggt á sama stað. Ég tel iíka nokkurn veginn öruggt, að bærinn í Hjörleifshöfða hafi alla tíð staðið á þessum sama stað, þar til jökulflóðið mikla í 62 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.