Goðasteinn - 01.03.1969, Page 77

Goðasteinn - 01.03.1969, Page 77
Þórður Tómasson: Skyggnzt um belcki í byggðasafni, XV Helgur kross Gestir, sem hcimsækja byggðasafnið í Skógum, spyrja stundum: Hver er nú elzti hluturinn hér í safninu? Ég kemst þá í nokkurn vanda með að svara. Það er fyrst um 1500, sem ártöl fara að skjóta upp kollinum á varðveittum gripum Islendinga, og þá átti þjóðin þó 600 ára sögu í landinu. Vafalaust hittast gripir í Skógasafni frá fornöld og miðöidum en vart fleiri en svo, að telja megi á fingrum beggja handa. Útlit og gerð gripa geta greint aldur, en eru þó ekki einhlýt, því söguöld og miðaldir lifðu í atvinnutækj- um Islendinga fram á 19. öld og jafnvel lengur. Landslög kveða á um rétt Þjóðminjasafnsins til forngripa. Þau voru sett og samþykkt árið 1907 að frumkvæði Matthíasar Þórðar- sonar þjóðminjavarðar og gilda óbreytt til þessa dags, þótt aldrci hafi að fullu verið eftir þeim farið. Aðeins eitt minjasafn var í landinu, er „Lög um verndun fornmenja“ voru sett. Nú cru mörg byggðasöfn til orðin, og öll hafa þau fengið til forráða gripi, sem „stóri bróðir“ gæti e. t. v. af þeim heimt, ef hann vildi valdi beita, en byggðasöfnin hafa þróazt í friði og velvilja allra afla og notið margrar fyrirgreiðslu af hálfu Þjóðminjasafnsins. Ekki er því þó að leyna, að hér sem annars staðar hæfir, að réttur sé fyrir hendi. Bezt er, að hver hafi sitt, og þá hefur skrattinn ekkert, sagði gamla fólkið. Ber að vænta þess, að ný lög um þjóðminjar gefi söfnum einstakra landshluta eða héraða aukinn rétt til varðveizlu fornra gripa, því vafalaust mun þróun tímans hefja sum þeirra til sömu aðstöðu varðandi aðbúnað og hirðingu forngripa og Þjóðminja- safnið býr við. Ungi Fljótshlíðingurinn, Guðmundur Magnússon á Kotmúla, sem fann sögualdarspjótið, sem nú er bezt til ofan moldar á íslandi, hugði, að beina mætti því til safnvarðarins í Skógum, en hann flutti það eins og skurnlaust egg suður í Þjóðminjasafn, sem eitt átti rétt á því og citt var fært um að leysa það úr álögum ald- Goðasteinn 75

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.