Goðasteinn - 01.03.1969, Page 79

Goðasteinn - 01.03.1969, Page 79
Steðjinn frá Hamragörðum er mjög sérkennilegur að formi, fcr- hyrndur, nefjalaus og fótlaus, auk annarra einkenna, og svipað ei að segja um steðjann frá Bollakoti, þótt þeir séu annars ólíkir. Hamragarðasteðjinn fannst í smiðjugólfi í Hamragörðum um síð- ustu aldamót. Eina öxi frá víkingaöld er að finna í Skógasafni. Hún er komin þangað að gjöf frá Eyjólfi Ágústssyni í Hvammi í Landsveit, fund- in í uppblæstri í landi jarðarinnar. Leifar af skafti sjást enn í axar- auganu. Tvö miðaldainnsigli eru í Skógasafni, annað frá Hvoli í Mýrdal, hitt frá Ásólfsskála undir Eyjafjöllum. Árið 1955 var tekin gröf í kirkjugarðinum í Skógum. Ungur maður, sem þar var að verki, Þorsteinn Eyjólfsson á Hrútafelli, veitti athygli lítilli málmplötu í mokstrinum og hélt til haga. Um tíu árum. seinna afhenti móðir hans, frú Helga Ólafsdóttir, mér þennan grip. Fáa göfgari hef ég handleikið. Þarna var einkenni Markúsar guðspjallamanns, vængjað Ijón, gert með Limogessmelti, sennilega frá 13. öld. Gaman væri nú að eiga þann kross heilan, sem þessi plata var fest á í öndverðu. Og þá kem ég að áþreifanlegum krossi. Veturinn 1967 kom nemandi í Skógaskóla, Helgi Gunnarsson frá Ytri-Ásum í Skaftár- tungu, með fornan, tærðan málmkross, greinilega skartgrip konu, og færði Skógasafni að gjöf frá sér og fjölskyldu sinni. Krossinn lét ekki mikið yfir sér, en á honum var augljós svipur miðalda. Skartkrossar kvenna frá þcim tíma hafa haldizt í eigu fárra ís- lenzkra ætta fram á þessa öld, nokkrir eru í söfnum utanlands og innan, en langflestir hafa lent í brotasilfri og bræðslu silfursmiða. Ásakrossinn er ekki úr góðmálmi. í honum virðist vera látún, en sízt er fyrir að synja, að það hafi verið gyllt fyrir eina tíð. Útlit hans benti til þess, að hann hefði komið nærri eldi eða legið í ösku og sýrur í jarðvegi virtust hafa tært málminn. í ferhyrndan reit í miðju krossins voru markaðir stafirnir: IHS. Gerð krossins og þessi áletrun benti til þess, að hann væri vart yngri en frá um 1500. Auga hafði verið ofan á krossinum, hald fyrir hálsfesti, en brotnað hafði ofan af því. Krossinn fékk hjá mér safnnúmer S: 560. Hann er jafnarma, Goðasteinn 77

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.