Goðasteinn - 01.03.1969, Page 87

Goðasteinn - 01.03.1969, Page 87
Jón R. Hjáltnarsson: Veiðibrellan Smásaga Hún cr falleg Langáin, þar sem hún liðast í bugðum og sveigum um grösuga sveitina og fellur loks til sjávar nokkru fyrir austan kaupstaðinn. Og þessi á er ekki aðeins mikil sveitarprýði. Hún er líka ein af beztu veiðiám landsins að fornu og nýju. Sú var tíðin, að bændurnir í sveitinni með skylduliði sínu stóðu fram í myrkur með net í ádrætti í þessari á, óðu upp undir hendur eða sund- hleyptu í dýpstu hyljunum og mokuðu spriklandi laxi og silungi á iand. Mikil var veiðigleðin, þegar hncllnir strákar hentu sér yfir stærstu laxana í fjöruborðinu til að koma í veg fyrir að þeir slyppu út í ána aftur. Og ekki minnkaði fiskigengdin, þótt mikið væri veitt á stundum. Alltaf nóg fyrir alla. Já, það var oft líf og fjör við Langá á fögrum síðsumarskvöld- um hér áður fyrrum. En nú var allt orðið brcytt. Heimafólkið í sveitinni veiddi þar ekki lengur. Það kváðu ekki framar við hróp og köll stæltra og holdvotra stráka, þcgar laxanetin voru dregin upp á bakkann. Samt var fiskurinn í ánni sem áður og kannski aldrei meiri en nú. En það voru komnir nýir tímar með nýjum herrum. Enginn vissi raunar fyrir víst, hvernig þetta hafði gerzt og kannski vildi heldur enginn vita það. En cinhvcrn veginn hafði Hansensfólkið með margs konar kaupskap og flóknum samning- um náð eignarhaldi á ánni og eftir það var öll veiði heimamanna stranglega bönnuð fyrir fullt og allt. Það höfðu verið erfiðir tím- ar, skuldir og kreppa, og því fór sem fór. Áin var á sínum stað, cn veiðin bönnuð. Goðasteinn 85

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.