Úrval - 01.02.1979, Page 122

Úrval - 01.02.1979, Page 122
120 ÚRVAL fjöllin allt sumarið, kleif á tinda, fleytti mér niður Snáká í bílslöngu, fram hjá stóreygðum ferðamönnum sem fóru niður sömu flúðir í stórum gúmmíbátum. Áin var eins og opinn dýragarður. Elgur beið á bakkanum þegar ég flaut hjá eins og rekaviður. Bjór synti þvert á leið mína. Silungur vakaði í svölu morgunloftinu. Slönguna rak á land af eingin rammleik og ég hélt upp á bakkann meðfram ánni. Ég rakst á elgsslóð áður en ég var kominn 50 metra. Eg hét því að staldra við, annað hvort þangað til elgurinn kæmi eða veturinn. Ég þurfti ekki að bíða fulla klukku- stund hjá slóðinni áður en hann kom hjá. Þegar hann kom, gat ég varla trúað því hver stór hann var, svona alveg hjá. Hausinn á honum var eðlileg skepnustærð út af fyrir sig. Ég var svo undrandi á stærð hans að ég rétti úr mér þar sem ég stóð, nógu nærri honum til að snerta hann, um leið og hann gekk hjá. Ég sá ekki yfir hann! Ég kraup afar hljóðlega aftur, og vonaði að hann hefði ekki tekið eftir mér. Þegar hann var farinn, fór ég aftur um borð í slönguna mína og hélt áfram ofan eftir ánni, en það var ekki sama áin, og ég var ekki sami maðurinn. Ég hélt burtu fullur lotningar og vitundarinnar um að hafa kynnst algeralega nýju leyndarmáli. UM SÍÐIR SNERI ég aftur heim til New Jersey. I tíu ár hafði ég verið spurður aftur og aftur af hverju ég væri ekki í skóla, hvers vegna ég hefði ekki fasta vinnu milli níu og fimm, og hvers vegna ég verði svona miklum tíma á randi í Pine Barrens. Það var farið að flökra að mér að kannski væri líf mitt að renna hjá 1 tilgangsleysi, þegar öllu væri á botninn hvolft — hvort ég hefði ekki ruglast á heillandi tómstundaiðju og ævilöngum til- gangi. Það var rétt, sem sumir höfðu bent á: Það var ekki aðeins að ég væri hvorki ríkur né frægur, heldur hafði ég ekki einu sinni gert það sem alsiða þótt að gera. Ég hafði enga atvinnu, átti ekkert hús, enga fjölskyldu, enga vélsláttuvél, með sæti og enga líf- tryggingu. Ég tók að hugleiða til hvers ég lifði, og hvort ég ætti eitthvert hlutverk í skipulagi hlutanna. Slóð manns, sem ég kýs að kallaTomma, breytti þessu öllu. Tommi var fimm ára drengsál I fullvöxnum líkama. Hann hafði 31 ár að baki, en var enn jafn feimnislega saklaus og þegar hann var fimm ára. Honum þótti fjarska gaman að fara út í skóg með pabba, en stundum hafði pabbi hans of mikið að gera til að fara með honum. Einn góðan sunnudag tók Tommi sér til nesti, fór í tvennar buxur og tvær peysur og tók þá þriðju til vara. Hann var í einum stígvélum og bar önnur með sér. Hann tók líka allmörg segul- bönd með sér ef honum kynni að leiðast.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.