Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 4

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 4
2 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Tímarit hjúkrunarfræðinga Engjateigi 9 · 105 Reykjavík Sími: 540 6400 hjukrun.is Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigríður Elín Ásmundsdóttir Ritnefnd: Helga Pálmadóttir, Sölvi Sveinsson, Þórunn Sigurðardóttir, Ragnheiður Haralds Eiríksdóttir Bjarman Ritstjóri ritrýndra greina: Kristín Linda H. Hjartardóttir Ritnefnd ritrýndra greina: Páll Biering, Sigrún Sunna Skúladóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir Yfirlestur: Ragnheiður Linnet Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir Umbrot: Prentmet Oddi Forsíðumynd: Sigríður Elín Ásmundsdóttir Prentun: Prentmet Oddi ISSN 1022-2278 1 Maður er manns gaman stendur í Hávamálum sem voru skrifuð fyrir mörg hundruð árum síðan. Sumt breytist ekki, við þrífumst flest best á góðum og nærandi tengslum; samveru, snertingu og hlýju og án samferðafólks, fjölskyldu og vina erum við eyland og upplifum mögulega einsemd. Við viljum tilheyra, upplifa kærleika og nánd en í sífellt tæknivæddari heimi fer einsemd vaxandi. Við tengjumst í gegnum tæknina en slík tengsl koma ekki í staðinn fyrir mannleg samskipti í raunheimi og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO hefur talað um farald einmanaleika. Í Bretlandi hefur frá árinu 2018 verið starfandi ráðherra einmanaleika og í Japan er sams konar ráðherra. Það er kannski tímabært að hér á landi verði skipaður ráðherra í ríkisstjórn sem hafi andlega líðan þegna þessa lands í brennidepli? Í þessu tölublaði er áhugavert viðtal við Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur, hjúkrunarfræðing, doktorsnema og rithöfund sem nýverið gaf út bókina Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar. Aðalbjörg skoðar í þessari bók einsemdina út frá ýmsum hliðum, hún segist alltaf hafa haft áhuga á tengslum en þegar hún var í meistaranáminu má segja að áhuginn á einmanaleikanum hafi kviknað fyrir alvöru. Hún tók þá viðtöl við hjúkrunardeildastjóra um upplifun af starfi, álag, og bjargráð. „Þá kom í ljós að þeim sem leið ekki vel í vinnunni sögðust upplifa sig svo einar sem kveikti áhugann enn frekar og hvort við upplifum öll þessa tilfinningu að vera einmana,“ segir Aðalbjörg og afraksturinn varð svo þessi áhugaverða bók um mikilvægi tengsla, hvernig bregðast má við einmanaleika og hvað sú tilfinning eða upplifun getur kennt okkur. Jórlaug Heimisdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, kom líka í spjall til okkar en hún er verkefnastjóri heilsueflandi þjónustu. Hennar starf felst í að þróa, leiða og samræma starfsemi í heilsugæslu á landsvísu með áherslu á fólk með langvinnan heilsuvanda og aldraða. Þegar hún var spurð um helstu áskoranir í starfi sagði hún meðal annars: „Ein af áskorununum eru langvinnur heilsuvandi; andleg líðan og þar kemur svefnvandinn inn, kvíði og ýmislegt annað.“ Aftur komum við að andlegri líðan sem kannski má segja að sé rauði þráðurinn í átt að hamingjunni. Ef við erum vansæl, sofum illa, erum kvíðin, einmana eða allt í bland líður okkur ekki vel. Kulnun hefur verið áberandi í umræðunni undanfarin ár og sömuleiðis streitutengd heilsufarsvandamál. Þess vegna er svo mikilvægt að taka sumarfrí og njóta þess að slaka sem mest og best. Endurhlaða sig eftir veturinn með nægum svefni og njóta þess að gera sem minnst nema kannski bara að vera úti í náttúrunni eða liggja upp í sófa með góða bók. Sumir hlaða samt best á hlaupum eða á sundi í köldum sjó. Hvað sem það er, sem gefur þér orku og vellíðan, gerðu það og njóttu þess. Ég held ég þori að fullyrða að gott frí sé andlegri heilsu jafn nauðsynlegt og súrefni er heilastarfseminni. Kæru hjúkrunarfræðingar, vonandi náið þið að taka gott frí og njóta lífsins sem allra mest í sumar. Vonandi njótið þið líka lestur blaðsins sem er fullt af áhugaverðum viðtölum og ritrýndum greinum en þær eru fimm talsins að þessu sinni og allar mjög fræðandi og áhugaverðar. Sumarkveðjur, Pistill ritstjóra Frí jafn nauðsynlegt andlegri vellíðan og súrefni heilanum (hún/she)

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.