Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 6

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 6
4 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 20241 Síðustu mánuði hafa samninganefndir hjúkrunarfræðinga fundað með launagreiðendum með það að markmiði að ná góðum kjarasamningum. Enn eru engin stór tíðindi af árangri við samningaborðið, fyrir utan breytingar á betri vinnutíma en þó er samtalið í gangi og það skiptir miklu máli. Við fundum reglulega með trúnaðarmannaráði og stjórn félagsins um framgang viðræðnanna. Ég hvet alla til að fylgjast með í gegnum vefinn okkar, hjukrun.is, fréttabréfið okkar eða á samfélagsmiðlum Fíh. Það er að mörgu að huga þegar samið er um kjör til framtíðar. Það eru að verða miklar breytingar á þjóðfélaginu sem hjúkrunarfræðingar fara ekki varhluta af. Árlega eru teknar saman tölur um starfandi hjúkrunarfræðinga á landinu, í fyrra var í fyrsta sinn frá upphafi fækkun á starfandi hjúkrunarfræðingum, þó innan tölfræðilegra marka með teknu tilliti til fæðingarorlofa, veikindaleyfa og annarra slíkra þátta. Það að fjöldi starfandi hjúkrunarfræðinga fari lítillega fækkandi milli ára þá er ekki tilefni til gífuryrða en það gefur tilefni til að íhuga í hvaða átt þetta þjóðfélag er að stefna. Við höfum ekki efni á því sem þjóð að halda áfram í sömu átt, allar rannsóknir sýna að það þarf háskólamenntaða hjúkrunarfræðinga til að halda heilbrigðiskerfinu gangandi. Það er hlutverk stjórnvalda að koma í veg fyrir frekara brottfall hjúkrunarfræðinga úr starfi, halda þeim í starfi og tryggja nýliðun. Lína í sandinn Tölurnar segja okkur einnig að hjúkrunarfræðingum af erlendu bergi brotnu fjölgar úr rúmlega 6% í 8% milli ára. Þetta er eðlileg þróun í takt við þjóðfélagsbreytingarnar þar sem stækkandi hluti þjóðarinnar fæddist í öðru landi. Okkur mun aldrei takast að manna heilbrigðiskerfið með einungis íslenskum hjúkrunarfræðingum, það er einfaldlega ekki hægt að mennta nógu marga hérlendis til að halda í við eftirspurnina. Það skiptir hins vegar máli hvernig staðið er að fjölgun erlendra hjúkrunarfræðinga. Hér á landi getum við stolt sagt að engin heilbrigðisstofnun sæki markvisst hjúkrunarfræðinga til annarra landa. Slíkt gengur gegn opinberri og alþjóðlegum stefnum um að sækja ekki hjúkrunarfræðinga til annarra landa. Það er skortur á hjúkrunarfræðingum um allan heim og það er ósiðlegt að nota fjárhagslegan styrk okkar þjóðar til að sækja hjúkrunarfræðinga frá efnaminni löndum sem þegar berjast í bökkum með að reka sitt heilbrigðiskerfi. Við höfum séð ásakanir um slíkt t.d. á hendur heilbrigðisstofnunum í Bretlandi og það væri miður ef slíkt kæmi upp hér á landi. Þetta málefni verður til umræðu á ráðstefnu Samvinnu hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN) sem haldin verður í Reykjavík í september næstkomandi. Sjálfbærni þjóða þegar kemur að mönnun hjúkrunarfræðinga er langt frá því að vera einkamál okkar á Íslandi, um allan heim stendur fólk í sömu sporum og veltir fyrir sér framtíðinni. Það sem skiptir máli er að við höfum dregið línu í sandinn. Við látum ekki aðrar þjóðir mennta fyrir okkur hjúkrunarfræðinga en bjóðum þó að sjálfsögðu þá hjúkrunarfræðinga velkomna sem vilja setjast að á Íslandi á eigin vegum og ekki er um skipulagðan innflutning á þeim að ræða. Stöðvum ofbeldið Ólýsanlegur hryllingur á sér nú stað á Gazaströndinni, innviðir eru í rúst, ráðist hefur verið á heilbrigðisstarfsfólk og almenna borgara. Aðgangur fólks að heilbrigðisþjónustu eru mannréttindi og árásir á heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga eru með öllu óásættanlegar. Félagið hefur fordæmt ofbeldið sem á sér stað frá upphafi og tekið þar m.a. undir tilmæli frá alþjóðlegum samtökum hjúkrunarfræðinga og heilbrigðisstarfsfólks. Nauðsynlegt er að koma á friði án tafar og koma hjálpargögnum til þeirra sem þurfa á því að halda. Þann 3. október verður haldið hjúkrunarþing og munum við ræða þar hjúkrun við lok lífs. Málefni sem kemur hjúkrunarfræðingum við og nauðsynlegt að tekin verði markviss umræða um. Það þarf að hlusta á öll sjónarmið áður en félagið myndar sér formlega afstöðu eins og t.d. um margumrædda dánaraðstoð. Það þarf að skoða hlutverk hjúkrunarfræðinga, siðferðisleg álitamál og reynslu annarra þjóða. Nýr formaður á næsta ári Á næsta ári fara fram kosningar um formann Fíh. Ég mun ekki gefa kost á mér til áframhaldandi setu og verður þetta því mitt síðasta starfsár. Þetta er búinn að vera mjög gefandi, lærdómsríkur og krefjandi tími. Fram undan eru nú áframhaldandi kjaraviðræður og mörg önnur stór verkefni. Í framhaldinu tekur svo nýr leiðtogi við keflinu næsta vor. Ég hvet alla hjúkrunarfræðinga, eins og fyrr, til að taka sér lögbundið sumarfrí og eiga gefandi og góðan tíma með sínum nánustu. Þá fyrst er hægt að mæta aftur til vinnu og halda áfram því góða starfi sem þið þegar innið af hendi. Pistill formanns Breytingar Sumarið er tíminn til að slaka á, hlaða batteríin og njóta samverustunda með sínum nánustu. Ég vona að sem flestir hjúkrunarfræðingar nái samfelldu fríi því fátt er mikilvægara en að gefa sér góðan tíma til að hlúa að sjálfum sér og sínum. Okkar besta fólk Okkar besta fólk í heilbrigðisgeiranum hefur reitt sig á þjónustu okkar um árabil. Þau þurfa að geta treyst því að öll tæki og búnaður sé örugglega í lagi og virki eins og til er ætlast. Höfðabakki 7, 110 Reykjavík | fastusheilsa.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.