Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 14

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 14
12 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Spurt og svarað Hvernig er Styrktarsjóðurinn fjármagnaður? Það eru atvinnurekendur hjúkrunarfræðinga sem greiða í sjóðinn í samræmi við ákvæði kjarasamninga. Greitt er mánaðarlega 0,75% af heildarlaunum hjúkrunarfræðinga sem vinna hjá ríkinu, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum en 1% iðgjald fyrir þá hjúkrunar- fræðinga sem vinna á almenna markaðnum. Ástæðan fyrir mishárri prósentu er að m.a. er réttur vegna veikinda sterkari hjá ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum en á almenna markaðnum. Hvenær get ég sótt um styrk í sjóðinn? Rétt til að fá úthlutað styrk úr Styrktarsjóði Fíh á félagsfólk sem atvinnurekendur hafa greitt styrktarsjóðsframlag fyrir í samtals sex mánuði, þar af samfellt í þrjá mánuði, þegar stofnað var til útgjalda vegna viðburðar sem sótt er um. Hvar sæki ég um í Styrktarsjóð? Sækja þarf um styrki til sjóðsins á rafrænu formi á Mínum síðum. Mínar síður má nálgast efst í hægra horninu á vef Fíh, hjukrun.is. Nota þarf rafræn skilríki eða Íslykil til að skrá sig inn. Hvað styrkir Styrktarsjóður Fíh? Veittir eru ferns konar styrkir: Heilsustyrkur, fæðingarstyrkur, sjúkradagpeningar og útfararstyrkur. Hverjar eru fjárupphæðir styrkja sjóðsins? Veittur er heilsustyrkur allt að 60.000 krónur á ári vegna heilsu- tengdra útgjalda. Heilsurækt og endurhæfing, s.s. líkams- rækt, sjúkraþjálfun, sjúkranudd, kírópraktor, næringaráðgjöf og sálfræðiþjónusta, er undanþegið skatti en heilbrigðiskostnaður er skatt- skyldur. Þar má nefna gleraugnakaup, tannlæknakostnað, krabba- meinsskoðun og áhættumat vegna hjarta- og æðasjúkdóma. Er þá staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Fæðingarstyrkur er að hámarki 250.000 til foreldris fyrir hvert barn og ákvarðast upphæðin af starfshlutfalli. Hámarks mánaðargreiðsla sjúkradagpeninga hjúkrunarfræðinga er starfa hjá ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum er 400.000 kr. og miðast sú upphæð við fullt starf. Hjá hjúkrunarfræðingum er starfa á almenna markaðnum er hámarks mánaðargreiðslan 610.000 kr. og miðast við fullt starf. Sjúkradagpeningar eru greiddir í allt að fjóra mánuði. Aðstandendur hjúkrunarfræðinga geta sótt um útfararstyrk að upphæð 350.000 kr. Hvað mega kvittanir vera gamlar? Kvittanir mega vera allt að 12 mánaða gamlar frá umsókn styrksins. Hvenær þarf að skila inn umsóknum? Umsóknir eru afgreiddar mánaðarlega, heilsustyrkur er þó ekki greiddur út í júlí. Umsóknum ásamt viðeigandi gögnum skal skila inn fyrir lok mánaðar. Hvaða gögnum þarf að skila inn með umsókn? Fyrir heilsustyrk: Sundurliðuðum reikningi, með nafni umsækjanda og kennitölu, ásamt staðfestingu á greiðslu reikningsins. Á reikningnum þarf að vera áritun/stimpill/merki þess sem gefur reikninginn út með upplýsingum um nafn og kennitölu, ásamt lýsingu á því sem greitt er fyrir. Fyrir fæðingarstyrk: Fæðingarvottorði barns og launaseðlum síðustu þriggja mánaða með starfshlutfalli. Fyrir sjúkradagpeninga: Umsóknareyðublað, læknisvottorði, launaseðlum síðustu þriggja mánaða með starfshlutfalli og vottorði um tæmingu veikindaréttar frá vinnuveitanda. Fyrir útfararstyrk: Dánarvottorð. Hvenær eru styrkir greiddir út? Að jafnaði er greitt út 24.–26. dag næsta mánaðar (eftir að umsókn berst) eða næsta virka dag á eftir. Umsóknir sem berast í desember greiðast út í janúar en færast sem styrkur á sama ár og umsókn barst. Er tekinn skattur af styrkjum sjóðsins? Greiðslur úr Styrktarsjóði eru almennt staðgreiðsluskyldar og er stað- greiðsla dregin af við afgreiðslu styrks. Dánarbætur og styrkir vegna heilsuræktar og endurhæfingar eru þó undanþegnir staðgreiðslu- skyldu. Hvaða rétt hef ég í veikindaleyfi? Sjóðsfélagar halda réttindum sínum í sjóðnum fyrir það tímabil sem þeir fá greidda sjúkradagpeninga frá Styrktarsjóði Fíh. Eins er farið með mál sjóðsfélaga sem þiggja endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og greiða stéttarfélagsgjald. Hvaða rétt hef ég í launalausu leyfi? Heilsustyrkur: Sjóðsfélagar halda réttindum í launalausu leyfi í allt að þrjá mánuði. Fæðingarstyrkur: Sjóðsfélagar halda réttindum í launalausu leyfi í allt að þrjá mánuði. Sjúkradagpeningar: Sjóðsfélagi í launalausu leyfi heldur réttindum í allt að þrjá mánuði. Réttur til styrkjar miðast við að hjúkrunarfræðingur hefji störf á ný um leið og launalausu leyfi lýkur. Ekki eru greiddir dagpeningar vegna veikinda í launalausu leyfi. Ég er atvinnulaus, á ég rétt á styrk? Sjóðsfélagar með full réttindi við upphaf atvinnuleysis halda réttindum sínum í eitt ár, enda hefjist bótatímabil eða ef til útgjalda sé stofnað innan árs frá upphafi atvinnuleysis. Skilyrði er að greitt sé félagsgjald af atvinnuleysisbótum til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Held ég rétti í sjóðinn þegar ég er komin/n á lífeyri? Sjóðsfélagar halda réttindum í 12 mánuði eftir að þeir láta af störfum og fara á lífeyri. Dagpeningar eru þó ekki greiddir lengur en í þrjá mánuði. Eru einhverjir fyrirvarar á styrkjum? Heilsu- og útfararstyrkir eru styrkhæfir í allt að 12 mánuði frá því að til útgjalda var stofnað. Kvittanir mega því vera allt að 12 mánaða gamlar. Fæðingarstyrk þarf að sækja um innan eins árs frá fæðingu barns. Get ég fengið greitt fyrir fram úr styrktarsjóðnum? Styrkur er aldrei greiddur út fyrir fram. Greiðsla styrkja felur alltaf í sér endurgreiðslu útlagðs kostnaðar fyrir heilsustyrk, fullnægjandi vottorðum og launaseðlum fyrir fæðingarstyrk, sjúkradagpeninga og útfararstyrk. Styrktarsjóður Fíh Styrktarsjóður Fíh veitir hjúkrunarfræðingum fjárhagsaðstoð í veikinda- og slysatilvikum, styður og eflir félagsfólk vegna endurhæfingar eftir slys eða veikindi, auk þess að efla forvarnir sem varða heilsufar og heilbrigði. Í stjórn Styrktarsjóðs sitja fimm hjúkrunarfræðingar sem kjörnir eru á aðalfundi félagsins annað hvert ár.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.