Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 17
Viðtal 15Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 komið upp á og stundum þurfum við að hringja út sjúkrabíla því fólk er misjafnlega á sig komið en það er yndislegt að vera þarna.“ Hlúir að tengslamyndun á vökudeildinni Aðalbjörg starfar ekki eingöngu á Heilsustofnun í Hveragerði því árið 2022 fór hún aftur að starfa á vökudeildinni. „Bæði vökudeildin og heilsustofnun eru gefandi vinnustaðir. Vökudeildin fangaði hjarta mitt þegar ég kom þangað fyrst í verknám sem sjúkraliðanemi. Þar er ég núna í 40% starfi og finnst það vera forréttindi. Þessi tvö ólíku störf mín sýna vel tækifærin sem felast í því að vera í hjúkrun. Þetta eru mjög ólíkir vinnustaðir, gjörgæsla og endurhæfing, en mér finnst ég aldrei vera slitin í sundur, þetta gengur allt upp. Á vökudeildinni er gjörgæsla, hágæsla og svo vaxtarrækt þar sem börnin eru orðin meira stabíl en eru enn að læra að drekka og slíkt. Ég flakka svolítið milli þess að vera í vaxtarræktinni og hágæslunni. Skemmtilegast finnst mér að hlúa að tengslamyndun milli foreldra og barna. Það eru þessi augnablik í starfinu eins og til dæmis að færa lítinn fyrirbura í fang móður þess eða föður í fyrsta skiptið, sem er mest gefandi. Það getur verið mjög krefjandi fyrir foreldra að vera með barnið sitt á vökudeild og það að geta valdeflt foreldra til að taka á sig þetta stóra hlutverk er líka mjög gefandi fyrir mig í starfi.“ Hún segir enn meiri áherslu vera á fjölskylduhjúkrunina en var fyrir nokkrum árum. „Það eru fleiri fjölskylduherbergi og við erum meira að fara til fjölskyldunnar; inn á sængurkvennagang og fæðingardeildina, í stað þess að barnið fari frá fjölskyldunni og til okkar. Það gerir það að verkum að starfið okkar er umfangsmeira, við þurfum að vera í öllum þessum tæknilega krefjandi atriðum og líka að sinna þessari fjölskylduhjúkrun og starfið meira krefjandi. Á sama tíma, þegar það gengur vel, þá er það meira gefandi.“ Mikilvægt að hlúa vel að starfsfólki Í B.S.-náminu í hjúkrun gerði ég rannsókn á handleiðslu fyrir hjúkrunarfræðinga, sem var ekki áberandi í umræðunni á þeim tíma en er það í dag. Það getur verið snúið að sinna alls konar fjölskyldum og stuðningur fyrir fagfólk hefur aukist. Stuðnings- og ráðgjafateymi spítalans kemur til dæmis inn og býður upp á stuðning en ég tel það vera lykilatriði fyrir starfsfólk að fá stuðning til að geta verið í þessu starfi. Við erum að takast á við erfiða hluti, jafnvel á hverjum degi og svo má ekki gleyma því að það eru ekki öll börn sem hafa það af. Þess vegna skiptir máli að það sé gætt að því að hlúa vel að starfsfólkinu, hjúkrunarfræðingar eru dýrmætir starfskraftar og sinna oft skjólstæðingum við erfiðar aðstæður, það þarf þá líka að hlúa að þeim sjálfum og það hefur aukist að það sé gert, að ég tel.“ Aðalbjörg nefnir líka að stór hluti gestanna sem komi á Heilsustofnunina í Hveragerði sé fólk sem er komið í kulnun eða í veikindaleyfi af einhverjum orsökum. „Þetta er oft fólk sem starfar með fólki, eins og til að mynda kennarar og hjúkrunarfræðingar, og þess vegna er svo mikilvægt að við pössum upp á okkur sjálf.“ Vanlíðan í starfi tengd einmanaleika Þá vindum við okkur að öðru; bókaskriftum og spyrjum Aðalbjörgu fyrst að því hvort hún hafi alla tíð haft áhuga á skrifum? „Já, ég hef alltaf haft mjög gaman af því að skrifa, það hefur verið mitt líf og yndi. Varðandi bókina Samskiptaboðorðin, þá var ég eiginlega beðin um að skrifa hana. Fyrst byrjaði ég á því að skrifa fræðibók um samskipti en hún var of þurr. Ég hafði í þá bók sett sögur úr mínu lífi sem tengdust samskiptum og var með dásamlegan ritstjóra sem heitir Guðrún. Hún eiginlega lagði til að ég skrifaði mína sögu og samskiptin út frá því, þannig að við snerum þessu Aðalbjörg á heimili sínu. Aðalbjörg í útgáfuboði bókarinnar Einmana.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.