Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 26
24 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 sem skólahjúkrunarfræðinga á öllu landinu nota við skráningu í heilsuvernd skólabarna. Í gegnum VPN-tengingu hef ég aðgang að Sögunni og afgreiðslukerfi heilsugæslunnar og get t.d. séð tímabókanir, gefið tíma, fylgt eftir niðurstöðum og sent skilaboð til hjúkrunarfræðinga og lækna, án þess að þurfa að mæta á stöðina eða hringja, sem sparar bæði spor og tíma. En fyrir covid hafði ég ekki aðgang að Sögunni þegar ég var staðsett í skólanum, sem var ákveðið flækjustig og fáránlegt til þess að hugsa svona eftir á. Ég opna tölvupóstinn og Mentor þar sem ég hef allar upplýsingar um nemendur, stundatöflur þeirra og fleira. Meðan þetta er allt saman að komast í gang sæki ég mér fyrsta kaffibolla dagsins. Ég skil eftir skilaboð á hurðinni hjá mér þegar ég fer svo fólk viti að ég sé mætt í hús; „skrapp frá, kem eftir smástund …“ Á kaffistofunni hitti ég á kennara tvítyngdra barna skólans sem minnir mig á að ég hafi boðað til mín þrjú systkini sem byrjuðu nýlega í skólanum, ásamt foreldrum og símatúlk í skólaskoðun, viðtal og bólusetningar síðar í vikunni. Þegar ég geng síðan ganginn með kaffibollann sé ég haltrandi dreng sem er á leiðinni inn til mín. Ég næ honum og spyr hvað hafi komið fyrir. Hann segist hafa snúið sig á ökkla kvöldinu áður þegar hann var í körfubolta. Hann kemur til mín á skoðunarbekkinn, ég fæ nánari upplýsingar frá honum og skoða fótinn með Ottawa-reglur í huga. Ökklinn er bólginn, verkur yfir fimmta metatarsal og hann stígur varla í fótinn og þarf því að fá röntgenmyndatöku til að athuga hvort um beinbrot sé að ræða. Hann fær hjá mér teygjusokk og ég hringi í foreldri og ráðlegg að leita á bráðamóttöku til nánari skoðunar. Upplýsi svo umsjónarkennara um stöðuna. Ég skanna síðan tölvupóstinn og svara því sem við á og skrái niður fundarboð fyrir næsta nemendaverndarráðsfund. Þá fer ég að stilla upp fyrir verkefni dagsins sem er kynþroska- fræðsla fyrir nemendur í 6. bekk. Aðstaðan mín er mjög góð og ég get haft fræðsluna á skrifstofunni minni þar sem þetta verða bara sex nemendur. Ég finn til verkefnaheftin, varpa fyrirlestrinum upp á skjá, sæki dömubindi, túrtappa og módel af kvenlíffærum sem ég nota sem við kennsluna. Ég set svo skilaboð á hurðina „er með fræðslu“ til að tryggja næði á meðan. Þetta er ein skemmtilegasta fræðslan sem ég sinni og þessi kröftugi drengjahópur reynist líka mjög áhugasamur, þeir spyrja og spekúlera og við reynum að komast í gegnum allar vangaveltur þeirra. Við taka frímínútur, ég gríp mér banana, sæki kaffibolla og rölti af stað með hjúkrunarnemanum til að sýna skólann. Á leiðinni heilsa ég krökkum og starfsfólki. Mér finnst mikilvægt að vera sýnileg og í góðum tengslum og samskiptum við bæði nemendur og starfsfólk svo auðveldara sé að leita til mín ef á þarf að halda. Það er kominn tími á áfyllingu á plástrum hjá 1. bekk þannig að það verður tekið með í næstu ferð og bætt í sjúkrakassann hjá þeim. Eftir útsýnisröltið er það næsti hópur dagsins í kynþroskafræðslu. Þegar þeirri fræðslu er lokið þá býð ég hjúkrunarnemanum að gefa mér endurgjöf á fræðsluna og við ræðum það sem vel var gert og hvernig hefði mögulega verið hægt að gera eitthvað öðruvísi. Við ræðum síðan verkefni sem hún á að gera í tengslum við verknámið og hittum umsjónarkennara á yngsta stigi sem er tilbúin að leyfa nemanum að koma inn með stutta fræðslu tengt forvörnum og valdi hún að tala um mikilvægi svefns. Stekk með plástrana inn í 1. bekk í leiðinni og kveð hjúkrunarnemann sem fer í önnur verkefni inni á stöð í dag og kemur aftur í fyrramálið. Næst á dagskrá er fyrir fram ákveðið viðtal við nemanda á unglingastigi sem ég hef verið að fylgja eftir með styðjandi samtali reglulega í nokkra mánuði þar sem verið er að einblína á kvíða og sjálfsstyrkingu og hafa verkfæri hugrænnar atferlismeðferðar reynst vel í þessu tilfelli. Ég er búin að mynda góð meðferðartengsl við unglinginn sem hefur tekið ákveðnum framförum á þessu tímabili. Hér er vert að taka það fram að um þverfaglega nálgun er að ræða og unnið í samstarfi við barnalækni, deildarstjóra og þroskaþjálfa skólans. Þegar því viðtali er lokið bíða mín þrír nemendur fyrir utan. Sá fyrsti í fylgd með vinum sínum fékk bolta framan á fingur í íþróttatíma, líkleg tognun, ég kæli fingur meðan ég tek þann næsta í skoðun. Sá er eitthvað slappur, illt í maganum og óglatt, fölur og með glansandi augu. Reynist vera með hita og ég hringi í foreldri sem kemur og sækir barnið. Þegar búið er að kæla fingurinn þá strappa ég saman tvo fingur, veiti almennar ráðleggingar varðandi tognun til nemandans og spjalla við vinahópinn um handboltamót sem allir eru spenntir fyrir í sumar. Síðasti nemandinn er með flís í fæti sem ég næ léttilega að fjarlægja. Eftir hádegismat er yfirleitt minna um viðtöl, skipulagða fræðslu eða skyndikomur enda skólinn búinn hjá flestum milli kl.13 og 14. Þá gefst tími fyrir skráningar og önnur verk. Ég fylgi eftir þeim skoðunum sem ég var að vinna að í síðustu viku þegar nemendur í 7. bekk voru í mælingum, sjónprófi og viðtali um lífsstíl og líðan. Ef það voru einhver frávik í skoðun þá þarf að hafa samband við foreldra og koma málum í farveg. Ég næ að taka þrjú slík símtöl. Hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands erum við að vinna eftir sérstöku verklagi í þessum málaflokki þar sem skólahjúkrunarfræðingar eiga samtal við foreldra, annaðhvort símleiðis eða með viðtali, taka nánari upplýsingar varðandi lífsstíl og líðan og geta veitt ráðgjöf. Einnig er foreldrum barna boðin blóðprufa og tími hjá heimilislækni í kjölfarið og er þá sem dæmi verið að athuga hvort það séu frávik í skjaldkirtilsstarfsemi eða byrjandi þróun á efnaskiptavillu. Þetta geta verið krefjandi og erfið samtöl um viðkvæmt umræðuefni og mjög mikilvægt að gæta að nærgætni og virðingu hér eins og annars staðar þegar maður á samskipti við foreldra vegna heilsu barna þeirra. Ég enda daginn á að fara aftur yfir tölvupóstinn og sendi út tölvupóst til foreldra þeirra nemenda sem voru í kynþroskafræðslu þennan daginn þar sem þeir eru hvattir til þess að eiga frumkvæði að umræðum um kynþroskann við börnin sín, skoða með þeim fræðsluheftið og vinn síðasta verkefnið með þeim. Ég sé svo að ég er búin að fá sent afrit af fyrri bólusetningum á arabísku fyrir systkinin sem eiga bókað hjá mér skoðun síðar í vikunni. Ég þarf að gefa mér tíma til þess að fara yfir það og setja upp plan ef eitthvað vantar upp á, það verður að bíða næsta dags. Ég slekk á tölvunni, geng frá og læsi öll vinnugögn ofan í skúffu. Gríp með mér hjálminn og hjóla af stað heim. Vaktin mín „Ég hef lokið framhaldsnámi í klínískri heilsugæsluhjúkrun og er í meistaranámi í heilbrigðisvísindum, því mér finnst svo brjálæðislega gaman að vera hjúkrunarfræðingur og læra meira um það sem nýtist mér í mínu starfi“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.